
Þrjú tilboð bárust í sameiginlegu útboði sorpmála fyrir Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ sem opnað var 24. janúar sl. Fundað var með bjóðendum um miðjan febrúar. Eftir yfirferð og úrvinnslu var öllum tilboðum hafnað, en nýtt hraðútboð sett af stað, þar sem sama útboð er endurtekið, með örlítið breyttum forsendum og styttri útboðsfresti en í fyrra skiptið.Lesa meira








