
Í gær, sunnudaginn 18. febrúar, var sr. Laufey Brá Jónsdóttir sett í embætti sóknarprests í Setbergsprestakalli á Snæfellsnesi. Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson prófastur setti sr. Laufeyju Brá í embætti og saman þjónuðu þau ásamt sr. Aðalsteini Þorvaldssyni og sr. Ægi Erni Sveinssyni. Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju söng undir stjórn Lindu Maríu Nielsen og organistanum Þorkeli Mána Þorkelssyni.…Lesa meira








