
Óvenjulega stór og flókin bilun í dreifikerfi rafmagns – ástæðuna þarf að greina betur
Umfangsmikil bilun varð í dreifikerfi Rarik út frá Vatnshömrum í Borgarfirði seinni partinn í síðustu viku. Fyrsta útleysing varð síðdegis fimmtudaginn 15. febrúar og í kjölfarið leysti út stærra svæði bæði í uppsveitum Borgarfjarðar og allt vestur á Mýrar. Þegar mest lét var rafmagnslaust á Mýrum, í Reykholtsdal, Lundarreykjadal, Flókadal, Hvítársíðu og allt upp í Húsafell í Hálsasveit. Einnig á afmörkuðum svæðum í Bæjarsveit og Andakíl. Bilanaleit reyndist mjög krefjandi og tímafrek og stóð yfir fram undir hádegi föstudaginn 16. febrúar. Allur tiltækur mannskapur Rarik og aðstoðarmanna fyrirtækisins á svæðinu tók þátt í bilanaleit og viðgerðum. Á föstudagsmorgun fóru fram vaktaskipti hjá mannskapnum sem vann að viðgerðum og viðbótarmannskapur kom til aðstoðar úr öðrum héruðum. Alls fundust átta bilanir í dreifikerfinu og þar af reyndust sex dreifispennar hafa eyðilagst.