Fréttir

true

Í vari á meðan versta veðrið gekk yfir

Nokkur skip sigldu til hafnar á meðan óveðrið gekk yfir í gær. Skipin Hringur SH 153, Valdimar GK 195, Kap VE 4 og Þórsnes SH 109 komu til Grundarfjarðar og biðu af sér veðrið þar. Þau héldu svo aftur til veiða hvert af öðru er storminn hafði lægt.Lesa meira

true

Norðvestan hvassviðri í kvöld og nótt

Vegagerðin bendir á að í nótt og fram á annað kvöld verður hvöss sunnanátt um norðvestanvert landið, allt frá Snæfellsnesi og austur að Eyjafirði, með hviðum um 35 m/s í vindstrengjum við fjöll. Hlýtt verður í veðri, en víða lélegt skyggni í talsverðri eða mikilli rigningu. Gul viðvörun er fyrir Breiðafjörð frá miðnætti í kvöld…Lesa meira

true

Fok á ýmsu og snjóbráð í hlýindunum

Í suðvestan hvassviðri dagsins hafa ýmsir hlutir farið á ferð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðvestan hvassviðris. Í kvöld bætir svo í úrkomu á svæðinu og kólnar heldur. Stærsta einstaka tjónið það sem af er degi er líklega að þak útihúsa á bænum Hömrum í Grundarfirði tók að losna og þakplötur…Lesa meira

true

Vefsvæði 112 þjónar einnig sem Ofbeldisgátt

Búið er að gera vefsvæði Neyðarlínunnar, 112.is, að vefgátt varðandi heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, ofbeldi gegn börnum og annars konar ofbeldi. Þar geta þolendur, aðstandendur og gerendur leitað upplýsinga og fundið úrræði til að stöðva ofbeldið. Einnig eru þar upplýsingar um réttarvörslukerfið, hvernig það virkar og hver framvinda máls er innan kerfisins þannig að þau sem verða…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll á norðanverðu Snæfellsnesi

Vegagerðin bendir á að í dag verður hvassviðri með hlýjum vindi. „Byljótt og hviður yfir 45 m/s á Vestfjörðum, Ströndum og norðantil á Snæfellsnesi þar til síðdegis í dag. Eins norðanlands, ekki síst í Skagafirði og Eyjafirði fram á kvöld. Víða blint í slydduéljum og éljum sunnan- og vestan til í kvöld.Lesa meira

true

Viðvaranir vegna veðurs á morgun, laugardag

Gular og appelsínugular viðvaranir eru vegna veðurs á morgun, laugardaginn 11. febrúar. Um vestanvert landið verður veður verst við Breiðafjörð. Frá klukkan 13 á morgun er spáð að þar verði sunnan- og suðvestan 20-28 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll, og einnig með éljum um kvöldið með takmörkuðu skyggni. Við þessar aðstæður er óráðlegt að…Lesa meira

true

Risatönkum skipað út á Akranesi

Starfsmenn Skagans 3X hafa lokið við smíði tveggja tanka fyrir laxasláturhús Arctic Fish er nú rís á hafnarkantinum í Bolungarvík. Í morgun voru tankarnir fluttir frá verksmiðjudyrum Skagans 3X á Akranesi um borð í danska fóðurflutningaskipið Vermland sem flytur þá til Bolungarvíkur. Að sögn Ragnars Inga Kristjánssonar vélahönnuðar hjá Skaganum 3X á Ísafirði er um…Lesa meira

true

Matvörugátt ætlað að auka aðhald á neytendamarkaði

Samningur um gerð sérstakrar Matvörugáttar var undirritaður í Ráðherrabústaðnum í dag. Í Matvörugáttinni munu neytendur geta fylgst með verði á helstu neysluvörum stærstu matvöruverslana landsins og verður gáttin hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði í desember. Í þeim kjarasamningum er kveðið á um að veittur verði stuðningur til að…Lesa meira

true

Sjö verkefni hljóta styrk úr Menningarmálaverkefnasjóði Dalabyggðar

Opið var fyrir umsóknir í Menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar frá 2. desember til og með 14. janúar sl. Alls bárust 12 umsóknir í sjóðinn að upphæð 2.290.000 kr. Til úthlutunar var ein milljón króna og skipti menningarmálanefnd henni á milli sjö verkefna: Sigurbjörg Kristínardóttir hlýtur 200.000 króna styrk fyrir kórstarf hjá blönduðum kór í Dalabyggð sem stefnir…Lesa meira

true

Einungis tímaspursmál hvenær hætt verður að bera út póst í þéttbýli

Í frumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi verða gerðar breytingar á lögum um póstþjónustu. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að rýmka til muna heimildir alþjónustuveitanda, þ.e. Íslandspósts, til að nýta bréfakassasamstæður í þéttbýli í stað þess að bera bréfpóst heim til fólks. Ráðherra sagði í framsöguræðu sinni að bréfasendingum…Lesa meira