Skemmdir urðu á þaki útihúsa á Hömrum. Ljósmyndir/ tfk

Fok á ýmsu og snjóbráð í hlýindunum

Í suðvestan hvassviðri dagsins hafa ýmsir hlutir farið á ferð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðvestan hvassviðris. Í kvöld bætir svo í úrkomu á svæðinu og kólnar heldur. Stærsta einstaka tjónið það sem af er degi er líklega að þak útihúsa á bænum Hömrum í Grundarfirði tók að losna og þakplötur að fjúka. Þá fauk geymsluskúr fyrir leiktæki við grunnskólann í Grundarfirði af stalli sínum. Einnig hafa lok á ruslatunnuskýlum fokið, kerrur farið á hliða og fleira smálegt látið undan síga í veðurhamnum. Björgunarsveitin Klakkur og Slökkvilið Grundarfjarðar eru nú til taks í björgunarmiðstöðinni komi fleiri óveðursútköll. Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari fór á stúfana, kannaði skemmdir og sendi meðfylgjandi myndir.

Fok á ýmsu og snjóbráð í hlýindunum - Skessuhorn