
Jólatónleikarnir „Er líða fer að jólum“ voru haldnir í fyrsta sinn í desember síðastliðnum. Tónleikarnir eru aftur á dagskrá fyrir næstu jól og fékk það verkefni núna 200.000.- króna styrk úr menningarmálasjóði. Á myndinni er tónlistarfólkið sem fram kom á liðnum tónleikum. Ljósm. aðsend.
Sjö verkefni hljóta styrk úr Menningarmálaverkefnasjóði Dalabyggðar
Opið var fyrir umsóknir í Menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar frá 2. desember til og með 14. janúar sl. Alls bárust 12 umsóknir í sjóðinn að upphæð 2.290.000 kr. Til úthlutunar var ein milljón króna og skipti menningarmálanefnd henni á milli sjö verkefna: