
Tankarnir voru smíðaðir inni í gömlu skipasmíðastöðinni og þaðan var ekið með þá í lögreglufylgd niður á höfn. Ljósm. hj.
Risatönkum skipað út á Akranesi
Starfsmenn Skagans 3X hafa lokið við smíði tveggja tanka fyrir laxasláturhús Arctic Fish er nú rís á hafnarkantinum í Bolungarvík. Í morgun voru tankarnir fluttir frá verksmiðjudyrum Skagans 3X á Akranesi um borð í danska fóðurflutningaskipið Vermland sem flytur þá til Bolungarvíkur. Að sögn Ragnars Inga Kristjánssonar vélahönnuðar hjá Skaganum 3X á Ísafirði er um að ræða tvo 100 rúmmetra RoteX skrúfutanka. Annars vegar er það RoteX blæðitankur sem tryggir jafna blæðingu fisksins eftir slátrun og hins vegar RoteX tankur sem ofurkælir fiskinn með Sub-chilling tækni þeirri sem starfsmenn Skagans 3X hafa þróað á undanförnum árum.