Fréttir

true

Erfið færð meðan lægð gengur yfir

Mjög hvasst er við Hafnarfjall og fer vindhraði í hviðum upp í 40 m/sek. Því þarf að aka með gát. Mun hægari vindur er á Kjalarnesi. Hálka er nú á Bröttubrekku. Snjóþekja eða hálka er víða. Krapi er á Heydalsvegi og á Skógarströnd. Flughált er í Skorradal, Lundarreykjadal og á Ferstikluhálsi í Borgarfirði. Vegna veðurspár…Lesa meira

true

Sundfólk Sundfélags Akraness stóð sig vel á RIG

Sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness náði góðum árangri á alþjóðlega mótinu Reykjavík International Games (RIG) sem fram fór um liðna helgi. Alls tóku um 330 keppendur þátt frá 16 löndum, þar á meðal keppendur sem hafa tekið þátt á Ólympíuleikum, heimsmeistara- og Evrópumeistaramótum. Alls voru tólf keppendur sem tóku þátt á mótinu frá SA og…Lesa meira

true

Skráning hafin í Hæfileikakeppni Arnardals

Hæfileikakeppni Arnardals og grunnskóla Akraneskaupstaðar verður haldin hátíðlega miðvikudaginn 22. febrúar næstkomandi í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst klukkan 19.30. Keppnin er með breyttu sniði í ár og hefur sú ákvörðun verið tekin að opna dyrnar fyrir fleiri en undanfarin ár. Hæfileikakeppnin verður áfram nýtt sem undankeppni Söngkeppni Samfés og verða því sér sætum úthlutað…Lesa meira

true

Leikskólinn Skýjaborg gefur út handbók

Starfsmenn leikskólans Skýjaborgar við Innrimel í Hvalfjarðarsveit hafa síðastliðið ár unnið þróunarverkefnið Snemmtæk íhlutun í mál og læsi í samstarfi við Menntamálastofnun. Afrakstur þróunarverkefnisins er útgáfa handbókar: „Handbók Skýjaborgar: Leikur, mál og læsi.“ Verkefnið leiddu Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur og faglegur ráðgjafi verkefnisins og Halldóra Guðlaug Helgadóttir, leikskólaráðgjafi og verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun. Í stýrihóp verkefnisins…Lesa meira

true

Handboltaæfingar hefjast á Akranesi

Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) verður með kynningu á handbolta á Akranesi í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness og íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar næstu sunnudaga. Boðið verður upp á æfingar fyrir börn á grunnskólaaldri. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu og verður um tvo aldurshópa að ræða til að byrja með. Fyrsti til fjórði bekkur verður frá klukkan 14-15…Lesa meira

true

ASÍ telur stjórnvöld hafa misst sambandið við líf almennings

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun verðbólgunnar. Miðstjórn telur gagnrýnivert að stjórnvöld hafi kosið að leiða hjá sér ábendingar og varnaðarorð um að hækkun ýmissa skatta og gjalda um áramót myndu koma af fullum þunga niður á almenningi í formi minni kaupmáttar, verðbólgu og vaxtahækkana. Sú spurning gerist sífellt áleitnari hvort…Lesa meira

true

Hafrannsóknastofnun leggur til 276 þúsund tonna loðnukvóta

Lagt er til að loðnuafli á yfirstandandi vertíð verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir ríflega 57 þúsund tonna hækkun frá þeirri ráðgjöf sem gefin var út 4. október síðastliðinn. Ráðgjöf Hafró byggir á samanteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri (763 þús. tonn) og leiðangri sem fór fram dagana 23.-30. janúar…Lesa meira

true

Sævar Freyr lætur af starfi bæjarstjóra og fer í Orkuveituna

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar mun láta af starfi fyrir Akraneskaupstað í lok mars, en hann hefur verið ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Í tilkynningu frá bæjarstjórn kemur fram að nú hefjist leit að nýjum bæjarstjóra en Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs mun gegna starfinu eftir að Sævar lýkur störfum og þar til nýr bæjarstjóri…Lesa meira

true

Jafnfréttisdagar í háskólum í næstu viku

„Bakslagið í hinsegin baráttunni, netið, kvenhatur og samsæriskenningar, stéttaskipting í íslensku málsamfélagi, umræður um vald, málsmeðferð stjórnvalda í málum flóttakvenna, jafnréttisvöfflur, upplifun og aðgengi jaðarhópa að háskólanámi, einhverfuhittingur, öráreiti og feminísk sjálfsvörn sem forvörn við kynbundnu ofbeldi.” Þessi upptalning er brot af veglegri dagskrá Jafnréttisdaga sem fara fram í háskólum landsins og víðar dagana 6.-9.…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll um hádegi í dag

Vegagerðin bendir á að nærri hádegi í dag sé spáð snörpum hviðum allt að 40-45 m/s í suðaustan átt, undir Eyjafjöllum og á utanverðu Kjalarnesi. Einnig við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi verður byljótt frá hádegi og fram undir kl. 18 í dag. Flughált getur orðið á fjallvegum norðan til á landinu þegar hlánar í…Lesa meira