
Samkeppniseftirlitið birti í dag ákvörðun sína þess efnis að kaup Ljósleiðarans ehf. á stofnneti Sýnar hf. eru samþykkt án skilyrða. Með þessu er síðasta fyrirvara í samningi félaganna aflétt en áður hafði fyrirvörum um m.a. áreiðanleikakönnun og fjármögnun þessa þriggja milljarða króna kaupsamnings verið aflétt. Samhliða kaupsamningi var gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára…Lesa meira







