Keppt verður um Mýrahrútinn 14. október

Hrútasýning verður haldinn að Lækjarbug á Mýrum laugardaginn 14. október næstkomandi. „Sýningin hefst kl. 19:30. Keppt verður í þremur flokkum: Í flokki kollótra, mislitir hrútar og hvítir hyrndir. Verðlaun verða veitt fyrir þrjá bestu í hverjum flokki. Þáttökurétt hafa lambhrútar á svæðinu frá varnargirðingu vestan Miklholtssels eða Eyjahreppi, Kolbeinsstaðahrepp, Hraunhreppi, Álftaneshreppi, Borgarhreppi og Borgarnesi,“ segir í tilkynningu.

Keppt verður um Mýrahrútinn 14. október - Skessuhorn