Fréttir

true

Vel sótt námskeið hjá Siglingadeild Snæfells í sumar

Í júní í sumar hélt Siglingadeild Snæfells í Stykkishólmi fjögur námskeið fyrir börn á aldrinum 10 – 15 ára þar sem farið var í grunnþætti siglinga á Topaz skútum, kynnst kajak siglingum og sullað í sjónum. Námskeiðin voru öll vel sótt og tókst vel til. Leiðbeinendur á námskeiðunum voru ungmenni á vegum vinnuskóla sveitarfélagsins. Ungmennin,…Lesa meira

true

Laus er staða verslunarstjóra Olís í Borgarnesi

Olís óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling í starf verslunarstjóra í Borgarnesi. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðvarinnar og vinnur með samhentum hópi starfsmanna. Störfin eru fjölbreytt þar sem á stöðinni er bæði veitingastaðurinn Grill 66 og Lemon Mini. Umsóknarfrestur er til 15. september, en umsóknir sendist á  https://jobs.50skills.com/olis/is -fréttatilkynningLesa meira

true

Endurheimt vistkerfa er ný alþjóðleg námsbraut við LbhÍ

Samhliða því að kennsla hófst við Landbúnaðarháskóla Íslands nú í ágúst fór í gang ný alþjóðleg námsbraut um endurheimt vistkerfa. „Meistaranám í endurheimt vistkerfa við LbhÍ er tveggja ára þverfaglegt nám sem veitir alþjóðlega innsýn og þekkingu á sviði vistheimtarfræði og hagnýta þjálfun í aðferðafræði endurheimtar. Nemendur öðlast þekkingu og reynslu af skipulagi, framkvæmd, vöktun,…Lesa meira

true

Tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók í gær við skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Hlutverk hópsins var að kortleggja og greina þjónustuþörf barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir. Honum var falið að endurskoða fyrirkomulag úrræða og þjónustu í þessum málaflokki, með réttindi barna og aðgengi þeirra að…Lesa meira

true

Ný heimasíða Borgarbyggðar væntanleg

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 24. ágúst síðastliðinn var María Neves samskiptastjóri sveitarfélagsins með kynningu fyrir ráðinu. Hún sýndi fyrstu útgáfu af nýrri heimasíðu sem áætlað er að opna formlega í september. Mikil vinna hefur verið lögð í að tryggja notendavænna umhverfi með því að einfalda og endurbæta síðuna. Nýja síðan er aðgengileg og einföld í…Lesa meira

true

Óttast er að „stóra umhverfisslysið“ hafi átt sér stað

Tvö göt fundust á sjókví Arctic Seafarm í Kvígindisdal í Patreksfirði fyrir rúmlega viku. Miklar líkur er taldar á að verulegt magn af fiski hafi sloppið og leiti nú upp í ár. Fiskistofa leitar nú að strokulaxi í Patreksfirði og Arnarfirði og biður jafnframt veiðimenn að senda slíka fiska til greiningar. Undanfarið hefur verið tilkynnt…Lesa meira

true

Eyþór Ingi með tónleika í Dalíu

Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður mun halda tónleika í Dalíu í Búðardal laugardaginn 2. september. Dalía er gamla Bankahúsið að Miðbraut 15. Nú er þar bæði gistiaðstaða og salur sem m.a. hefur verið notaður til tónleikahalds, en verið er að fara af stað með meiri starfsemi þar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en húsið opnar kl. 18.…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu á móti Haukum í hörkuleik

Það var ansi mikið undir í gærkvöldi þegar lið Hauka og ÍA mættust í 2. deild kvenna í knattspyrnu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrir viðureignina var ÍA með 32 stig í öðru sætinu og Haukar í því þriðja með 31 stig en Haukar leikið einum leik meira í deildinni. Með sigri hefðu Skagakonur getað náð…Lesa meira

true

Andlát – Halldór Árnason í Stykkishólmi

Hólmarinn Halldór Árnason lést 27. ágúst síðastliðinn, sjötugur að aldri. Hann fæddist 18. mars 1953 í Stykkishólmi, sonur hjónanna Árna Helgasonar, póst- og símstjóra og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur, kennara og póstafgreiðslumanns. Halldór varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1973, lauk viðskiptafræði frá HÍ 1978 og meistaraprófi í hagfræði frá Uppsalaháskóla 1983. Halldór starfaði lengstum hjá hinu…Lesa meira

true

„Ég vissi að Arnarvatnsheiðin væri sérstök og gæti fallið í kramið“

Arinbjörn á Brekkulæk í Miðfirði tekinn tali – ítarlegt viðtal Sögusvið okkar er að þessu sinni norður í Miðfirði og hálendið upp af honum. Venjulega tengjast viðmælendur í Skessuhorni Vesturlandi með beinum hætti í gegnum búsetu, en að þessu sinni er tengingin sú að viðmælandi okkar hefur í bráðum 45 ár haft atvinnu sína af…Lesa meira