Fréttir

true

Skagamenn komnir upp að hlið Aftureldingar eftir sigur á Selfossi

ÍA og Selfoss áttust við á Akranesi í Lengjudeild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Norðurálsvelli. Fyrir leik var mínútu þögn til að minnast Einars Skúlasonar sem lést laugardaginn 19. ágúst en Einar var mikill stuðningmaður félagsins í gegnum tíðina. Fyrsta færi leiksins fékk fyrrum leikmaður ÍA, Guðmundur Tyrfingsson, á elleftu mínútu…Lesa meira

true

Minningartafla baráttumanns

Bókaútgáfan Sæmundur undirbýr nú útgáfu á skáldsögu eftir Kristján L. Guðlaugsson (1949-2023) blaðamann sem einnig var þekktur baráttumaður vinstri manna að fornu og nýju. „Kristján bjó seinustu ár sín á Spáni með eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Huld Sveinsdóttur. Andlát hans bar brátt að í júní síðastliðnum og var undirbúningur skáldsögunnar Draumur Jórsalafarans þá á lokastigi.…Lesa meira

true

Skallagrímur með dramatískan sigur á Álftanesi

Það var alvöru dramatík og nóg af mörkum í leik Álftaness og Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu sem fram fór síðasta fimmtudag á OnePlus vellinum á slóðum forsetans. Heimamenn höfðu veika von með að halda sér uppi með sigri en Skallarnir vissu það að þeim nægði jafntefli til að halda sæti sínu í…Lesa meira

true

Samþykkja tilboð í ræstingar

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt tilboð Sólar ehf. um ræstingar á stofnunum Borgarbyggðar, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. ,,Þá samþykkir byggðarráð framlögð drög að þjónustusamningi við Sólar ehf. um ræstingar á stofnunum Borgarbyggðar og felur sveitarstjóra að fullvinna og undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Að mati byggðarráðs gefur tilboð Sólar ehf.…Lesa meira

true

Kári með góðan sigur á Ými

Eftir að hafa fengið aðeins eitt stig af níu mögulegum úr síðustu þremur leikjum sínum var ljóst að leikmenn Kára ætluðu sér ekkert annað en sigur þegar þeir mættu botnliði Ýmis í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn í Akraneshöllinni. Káramenn stilltu upp nokkuð breyttu liði frá síðasta leik þar sem fjórir leikmenn voru…Lesa meira

true

Víkingur gerði jafntefli við Sindra

Sindri og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Jökulfellsvellinum á Höfn í Hornafirði. Gestirnir komust yfir á 17. mínútu með marki frá Luke Williams en Björgvin Ingi Ólason jafnaði metin fyrir Sindra á lokamínútu fyrri hálfleiks, staðan 1-1. Abdelhadi Khalok kom síðan Víkingi aftur yfir á…Lesa meira

true

Dagsferð um söguslóðir í Hvítársíðu

Litla menntabúðin er áhugamál hjónanna Ingibjargar Kristleifsdóttur og Halldórs Gísla Bjarnasonar á Húsafelli. Þau hafa starfað að menntamálum alla sína starfsævi en eru nú sest að á Húsafelli, á æskustöðvum Ingibjargar. Litla menntabúðin var á tímabili fyrir Covid staðsett í Reykholti er nú að lifna við með heimilisfang á Húsafelli. Nú ætla þau að sinna…Lesa meira

true

Leikskólamenntaðir kennarar rúmur fjórðungur

Alls starfaði 1.581 leikskólakennari í leikskólum á Íslandi í desember 2022. Auk þess störfuðu 210 aðrir kennarar með kennsluréttindi í leikskólum landsins. Samtals voru menntaðir kennarar 26,6% starfsfólks við uppeldi og menntun barna í desember 2022 og lækkaði hlutfallið lítillega frá árinu á undan. Alls höfðu 1.060 starfsmenn við uppeldi og menntun leikskólabarna lokið annarri…Lesa meira

true

Atvinnuleysi jókst lítillega í júlí

Alls voru 7.600 atvinnulausir í júlí síðastliðnum samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. „Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,3% í júlí, hlutfall starfandi var 77,8% og atvinnuþátttaka var 80,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi dróst saman um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig.“Lesa meira

true

Bendir á umsögn Stykkishólms um samgönguáætlun

Í umsögn sinni við tillögum innviðaráðherra um nýja samgönguáætlun mótmælti Sveitarfélagið Stykkishólmur ýmsum atriðum sem þar koma fram. Meðal annars sérstaklega því að framkvæmdum við stofnveg um Skógarströnd eigi enn að fresta enda fer það beinlínis gegn markmiði með lögum um samgönguáætlun. Í bréfi sem bæjarstjóri sendi nýverið þingmönnum NV kjördæmis vegna málsins segir: „Sveitarfélagið…Lesa meira