
Heilbrigðisráðherra og tannréttingasérfræðingar hafa undirritað samning um tannréttingar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga. Samningurinn felur í sér að greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum verður aukin frá og með 1. september næstkomandi og tekur til tannréttingaþjónustu á eigin stofum tannréttingasérfræðinga fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Undir samninginn falla bæði almennar tannréttingar…Lesa meira








