Fréttir

true

Guðný ráðin í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs

Ráðið hefur verið í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs hjá Borgarbyggð. Guðný Elíasdóttir tekur nú við starfinu. Sjö umsóknir bárust en það var Hagvangur sem hafði umsjón með ráðningarferlinu ásamt sveitarstjóra, mannauðsstjóra og formanni byggðarráðs. ,,Guðný lauk B.Sc. í byggingarfræði frá háskólanum Vitus Bering í Danmörku árið 2004 og námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum í…Lesa meira

true

Brimborg úthlutað lóð fyrir hraðhleðslustöðvar í Borgarnesi

Brimborg lagði í byrjun júní fram erindi til byggðarráðs Borgarbyggðar þar sem fyrirtækið óskaði eftir því að setja niður bráðabirgðar hraðhleðslustöð á lóðina Fitjar 1 sem staðsett er vestan megin við hringtorgið í Borgarnesi. Fyrirhugað er að setja upp tvær stöðvar, eina 180kw og aðra 120kw þar sem hver hleðslusöð væri með tveimur tengingum og…Lesa meira

true

Erfðablöndun í íslenska laxastofninum staðfest víða

Sláandi niðurstöður koma fram í nýrri rannsókn Hafrannsóknastofnunar sem staðfesta mikla erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna við norskan eldislax. Landssamband veiðifélaga bendir á að bændur, veiðiréttarhafar og allir sem hafa hagsmuni af stangveiði hér á landi sem og náttúruverndarsinnar þurfi að hafa miklar áhyggjur af þessu. Þá gagnrýnir Landssamband veiðifélaga hversu seint niðurstöður úr rannsókn Hafró…Lesa meira

true

Slasaðist í svifvængjaóhappi

Hópur ferðamanna var við svifvængjaflug á utanverðu Snæfellsnesi á laugardaginn þegar einn þeirra féll til jarðar skammt frá Lóndröngum. Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út og fann manninn en hann hafði lent í stórgrýti. Maðurinn var með meðvitund en að sögn talsvert slasaður. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til. Þyrlan lenti við Malarrif og flutti…Lesa meira

true

Einar Margeir með góðan árangur á Evrópumeistaramóti unglinga

Einar Margeir Ágústsson úr Sundfélagi Akraness keppti um síðustu helgi á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi, ásamt sex öðrum sundmönnum frá Íslandi. Mótið er mjög sterkt og allir bestu yngri sundmenn Evrópu mættir til leiks. Á mótinu kepptu 585 sundmenn frá 40 þjóðum. Einar Margeir ásamt Snorra Degi Einarssyni frá SH syntu sig inn í 16…Lesa meira

true

Tjörublæðinga verður vart

Vegagerðin varar við tjörublæðingum á þjóðvegi 1 frá Borgarnesi og upp á Holtavörðuheiði. Slíkt gerist einkum við þær aðstæður þegar hitastig er hátt og sólríkt nokkra daga í röð. Ef tjörublæðing í klæðningum ágerist geta orðið skemmdir á bílum þegar malbik sest inn á hjólskálar og undirvagn bíla og þá geta einnig orðið lakkskemmdir á…Lesa meira

true

Segja húsaleigusamning við Ikan hafa verið svikinn

Eigendur Ikan ehf, þau Þorsteinn Máni Árnason og María Sigurjónsdóttir, hafa sent Fornbílafélagi Borgarfjarðar (FB) opið bréf. Ikan hefur eins og kunnugt er endurleigt af FB hluta gömlu fjárréttarinnar í Brákarey, en hefur ekki haft aðgang að húsnæðinu frá því í febrúar fyrir hálfu þriðja ári síðan, eftir að húsum í Brákarey var lokað af…Lesa meira

true

Aukið grugg í neysluvatninu frá Grábrókarveitu

Aukning hefur orðið á gruggi í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal í kjölfar jarðskjálfta upp á 5,2 stig sem varð klukkan 22:23 í gærkvöldi. „Svona aukning getur minnkað vatnsgæði en verið er að taka sýni til staðfestingar,“ segir í tilkynningu frá Veitum. Í varúðarskyni er viðkvæmum neytendum bent á að sjóða neysluvatn…Lesa meira

true

Eldur kom upp í rúllusamstæðu á Hjarðarfelli

Það óhapp varð á bænum Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi um nónbil í gær að eldur kom upp í rúllusamstæðu þegar Gunnar Guðbjartsson bóndi var að rúlla og pakka heyi. Sótt voru tiltæk slökkvitæki heim á bæ og þess freistað að slökkva eldinn í vélinni þar sem hún stóð. Þar sem það tókst ekki var…Lesa meira

true

Þrír fórust þegar lítil flugvél brotlenti

Þrír létust þegar flugvél brotlenti á hálendinu austanverðu síðdegis í gær. Tveir farþegar voru um borð í flugvélinni ásamt flugmanni. Þeir voru allir úrskurðaðir látnir á vettvangi. Umfangsmikil leit hófst undir kvöld um leið og boð barst frá neyðarsendi vélarinnar. Allar tiltækar björgunarsveitir á Austurlandi og fleiri voru kallaðir til leitar. Flak vélarinnar fannst um…Lesa meira