Fréttir

true

Hafa starfað á kúabúum í Danmörku, Frakklandi og Nýja-Sjálandi

Á Helgavatni í Þverárhlíð er myndarlegt kúabú sem bræðurnir Vilhjálmur og Pétur Diðrikssynir hafa rekið undanfarna áratugi ásamt eiginkonum sínum, Ágústu Ólöfu Gunnarsdóttur og Karítas Hreinsdóttur. Nú eru ákveðin tímamót á Helgavatni þar sem næsta kynslóð undirbýr að taka við búinu, en þau Diðrik Vilhjálmsson og Sigríður Guðbjartsdóttir hafa nú þegar byggt sér hús á…Lesa meira

true

Fjölmenni á hátíðarhöldunum í Snæfellsbæ – MYNDASYRPA

Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins fóru að venju fram í Snæfellsbæ. Skipulag þeirra og þátttaka var með ágætum og hafa ekki jafn margir gestir verið saman komnir í mörg ár til þess að fagna þessum hátíðisdegi sjómanna og fjölskyldna þeirra. Á föstudag var farið í skemmtisiglingu á þremur bátum út á víkina og að Vallarbjargi til…Lesa meira

true

Gísli ÍS dreginn af strandstað

Á kvöldflóðinu í gærkvöldi tókst að draga smábátinn Gísla ÍS á flot af strandstað á Breiðuvík á Snæfellsnesi. Báturinn strandaði á sunnudagskvöldið og tókst skipverja að komast af sjálfsdáðum í land. Báturinn var dreginn af strandstað af tveimur léttabátum af varðskipinu Freyju. Þá var ein beltagrafa í landi sem aðstoðaði við verkið. Gekk þetta vel…Lesa meira

true

Sælusumrin löng – Dúó Áróra heldur tónleika á Vesturlandi

Píanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir og söngkonan Solveig Óskarsdóttir skipa tveggja manna tónlistarflokkinn Dúó Áróra. Þær munu ferðast um Vesturland á næstu dögum og halda þrenna tónleika. Fyrstu tónleikarnir verða í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi laugardaginn 10. júní, þeir næstu í Borgarneskirkju þriðjudaginn 13. júní og þriðju og síðustu verða í Stykkishólmskirkju föstudaginn sextánda en allir…Lesa meira

true

Ganga um Búðardal tvisvar í viku

Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferð í Búðardal á mánudaginn veitti hann eftirtekt hópi göngufólks sem var á ferð meðfram Dalbrautinni. Var þar á ferð gönguhópurinn Stormur sem er gönguhópur Félags eldri borgara í Dölum. Oft eru um tíu manns sem ganga í hvert sinn en í ár eru 12 ár síðan gönguhópurinn var stofnaður.…Lesa meira

true

Yfirlitssýning um verk Philippe Ricart opnuð í dag á Blönduósi

Á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi verður í dag klukkan 16:30 opnuð yfirlitssýning á textílverkum listamannsins Philippe Ricart. Philippe bjó lengst af á Akranesi en hann lést árið 2021. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og var m.a. bæjarlistamaður Akraness árið 1997. Á veggspjaldi sýningarinnar ásamt stuttu ágripi yfir feril Philipppe segir m.a: „Philippe fæddist í…Lesa meira

true

Bíllaus dagur hjá bæjarstjóranum

“Ég var bíllaus í dag og greip því bara næsta lausa tæki til að fara á í vinnuna,” sagði Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Eins og flestir vita er Haraldur jafnframt bóndi á Vestri-Reini í næstu sveit og því var ekki um langan veg að fara á Massey Ferguson með áburðardreifarann.…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá forráðamönnum barna við Laugargerðisskóla

Hópur foreldra og forráðamanna barna við Laugargerðisskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps um að slíta viðræðum við foreldra og óstofnað ehf. um þjónustusamning vegna einkarekins grunnskóla í Laugargerði og leigu á eignum sveitarfélagsins þar. Í yfirlýsingunni er sveitarstjórn harðlega gagnrýnd fyrir vinnubrögð sín við þær breytingar á skólamálum sem…Lesa meira

true

Smábátur strandaði í Breiðuvík

Smábátur strandaði í Breiðuvík á Snæfellsnesi, skammt austan við Arnarstapa, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Einn var um borð í bátnum og komst hann í land af sjálfsdáðum, hruflaðist aðeins og var fluttur á heilsugæsluna í Ólafsvík til aðhlynningar. Skipverjinn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Gæslan kallaði út varðskipið Freyju sem statt var í grenndinni…Lesa meira

true

Slysavarnadeildin Líf gaf endurlífgunardúkkur

Fulltrúar frá Slysavarnadeildinni Líf á Akranesi færðu í þessari viku Brekkubæjarskóla og Grundaskóla endurlífgunardúkkur að gjöf. Alls fékk hvor skóli 20 dúkkur að gjöf en fyrir voru til tíu dúkkur í skólunum og því er nú hægt að kenna alls 50 nemendum að hnoða í einu.   Verkefnið sem um ræðir heitir Börnin bjarga og…Lesa meira