
Á sjötta tímanum í nótt barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð. Skipverji á togskipi sem statt var út af Snæfellsnesi hafði slasast þegar skipið fékk á sig brotsjó. Skömmu síðar hélt þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ frá Reykjavíkurflugvelli. Um klukkan hálf átta var búið að ná skipverjanum um borð í þyrluna og flogið með hann á Landspítalann…Lesa meira








