Fréttir

true

Gera ráð fyrir krapa eða snjó á heiðum

Veðurspá framunda er þannig að það verður sunnan- og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða skúrir í dag, en úrkomulítið norðaustanlands. Vestlægari á morgun, úrkomulítið seinnipartinn og fer að lægja, en rigning á sunnanverðu landinu annað kvöld. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast norðaustantil. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Með köldu lofti úr vestri mun…Lesa meira

true

Bát rak að landi

Klukkan 09:48 í morgun barst björgunarsveitum útkallsbeiðni á hæsta forgangi. Þá var vélarvana bátur staddur fyrir mynni Hvalfjarðar í vestan roki og rak stjórnlaust í átt að landi. Skömmu síðar var beiðni um aðstoð afturkölluð þegar tekist hafði að koma vél bátsins í gang að nýju. Allt fór því vel.Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær, föstudaginn 19. maí, voru 52 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi af níu mismunandi námsbrautum. Átta útskrifuðust af félagsfræðabraut, þrír af náttúrufræðabraut, átta af opinni stúdentsbraut, einn af starfsbraut, þrír af sjúkraliðabraut, fimm af málm- og véltæknibraut (þar af einn einnig með viðbótarnám við iðngrein til stúdentsprófs), fimm úr vélvirkjun og 14…Lesa meira

true

Tók þátt í einu sterkasta sundmóti Evrópu

Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi Akraness keppti með A-landslið Íslands á Mare Norstrum mótaröðinni sem fram fór í Barcelona dagana 17-18. maí sl. Þar stóð hann sig með ágætum. Ísland sendi sjö fulltrúa á mótið sem er eitt af sterkustu mótum sem haldið er í Evrópu. Þar tóku þátt sundmenn frá 46 löndum og öllum…Lesa meira

true

Áhuginn á poppmúsík og hljómsveitamennsku var ódrepandi

Spjallað við skólamanninn og popparann Svein Þór Elinbergsson í Ólafsvík – Viðtal úr Jólablaði Skessuhorns frá 2013 Nafn Sveins Þórs Elinbergssonar bar fljótlega á góma þegar svipast var um eftir álitlegu viðtalsefni í jólablað Skessuhorns 2013. Sveinn hefur starfað lengi að skólamálum eða í 27 ár, lengst af í Ólafsvík og Snæfellsbæ. Í dag er…Lesa meira

true

Ráðinn í eignaumsjón hjá Grundarfjarðarbæ

Bergvin Sævar Guðmundsson hefur verið ráðinn til starfa við eignaumsjón hjá Grundarfjarðarbæ. Sævar hefur sinnt starfinu í afleysingum frá því í byrjun september 2022 en starfið var auglýst 21. apríl síðastliðinn og var gengið frá ráðningu í kjölfarið. Fram kemur á vef Grundarjarðarbæjar að starfið feli í sér umsjón fasteigna og annarra mannvirkja bæjarins, eftirliti…Lesa meira

true

Ásmundur Einar í heimsókn í Brekkubæjarskóla

Síðastliðinn þriðjudag kom Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, í heimsókn í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ásmundur og aðstoðarmenn hans, Sóley Ragnarsdóttir og Teitur Erlingsson, fengu kynningu á teymiskennslu í Brekkubæjarskóla, heimsóttu nemendur í nokkrum bekkjum skólans og fengu innsýn í skólastarfið. Á heimasíðu Brekkubæjarskóla kemur fram að nemendur úr nemendaráði skólans hefðu kynnt vinnu nemendaráðs…Lesa meira

true

Keith Jordan Jr. og Cheah Rael valin bestu erlendu leikmenn ársins

Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, stóð fyrir árlegri verðlaunahátíð sinni fyrir úrvals- og fyrstu deildir í karla- og kvennaflokki eftir hádegi í dag. Þar voru leikmenn, þjálfarar og dómarar verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Í fyrstu deild karla var Dúi Þór Jónsson úr Álftanesi kosinn leikmaður ársins, Keith Jordan Jr. úr Skallagrími besti erlendi leikmaðurinn og…Lesa meira

true

Mála bæinn hvítan

Síðastliðinn miðvikudag var á ferðinni vinnuflokkur að merkja gangbrautir á Akranesi. Eftir veturinn er á mörgum stöðum í bænum staðan þannig að málningin hefur máðst af gangbrautum og því nauðsynlegt að bæta úr því. Blaðamaður Skessuhorns var á röltinu á Skagabrautinni seinni part miðvikudags og smellti mynd af vegmerkingarmönnum. Yfirleitt er þetta það fyrsta af…Lesa meira

true

Vilja þróa athafnasvæði Steypustöðvarinnar í Borgarnesi

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn miðvikudag mættu gestir. Það voru þeir Björn Ingi Victorsson forstjóri Steypustöðvarinnar og Andrés Konráðsson framkvæmdastjóri einingaverksmiðju Steypustöðvarinnar í Borgarnesi. Umræðan snerist um mögulega uppbyggingu athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi. Í fundargerð segir: „Byggðarráð þakkar stjórnendum Steypustöðvarinnar fyrir gott samtal um tækifærin sem felast í áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi fyrirtækisins…Lesa meira