Fréttir

true

Hætti á frystitogara eftir aldarfjórðung þar og keypti sér smábát

Haraldur Jónsson sjómaður á Akranesi hefur reynt ýmislegt á lífsleiðinni Skessuhorn er nú byrjað að birta gömul en áhugaverð viðtöl úr eldri árgöngum blaðsins hér á vefnum. Fyrir fimm árum síðan var rætt við Harald Jónsson sjómann á Akranesi, Hadda Jóns. Viðtalið tók nafni hans Bjarnason blaðamaður: Hann kemur út á svalainnganginn um leið og…Lesa meira

true

Kátir krakkar að leik í vettvangsferð

Blaðamaður Skessuhorns var á ferð við Byggðasafnið í Görðum í morgun og hitti þá hressa krakka úr 3. bekk í Grundaskóla á Akranesi sem voru að forvitnast um ferðir blaðamanns. Þau voru í vettvangsferð í blíðunni og heimtuðu að fá hópmynd sem var hið minnsta mál. Þau kvöddu síðan og héldu áfram leik enda veður…Lesa meira

true

Bjóða út ræstingar í stofnunum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar i gær var lagt til og samþykkt að bjóða út ræstingar í nokkrum stofnunum sveitarfélagsins. Það eru Grunnskólann í Borgarnesi, Aldan, Frístund, Óðal, Leikskólinn Andabær, Tónlistarskóli Borgarfjarðar og ráðhús Borgarbyggðar. Samþykkt var að bjóða verkið út 1. júní nk. og að leitað verði liðsinnis ráðgjafa við gerð útboðsgagna. Að öðru leyti…Lesa meira

true

Sviptur ævilangt og átta mánaða fangelsi

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands 27. apríl síðastliðinn dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar, sviptingar ökuréttinda ævilangt og til greiðslu ríflega 40 þúsund króna sektar fyrir ölvunarakstur. Í ákæruskjali kemur fram að málið væri höfðað fyrir; „umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi föstudaginn 13. janúar 2023 ekið bifreiðinni HX-M90, óhæfur til að stjórna henni vegna…Lesa meira

true

Sjóferð um sundin býðst börnum á svæði Faxaflóahafna

Faxaflóahafnir og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hafa endurnýjað samstarfssamning um verkefnið „Sjóferð um sundin“, þar sem grunnskólabörn sveitarfélaga Faxaflóahafna er boðið í siglingu á Faxaflóa undir leiðsögn starfsmanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Samstarfsverkefnið hefur staðið grunnskólanemendum til boða í yfir tvo áratugi og hefur gefið nemendum í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi kost á að læra um…Lesa meira

true

Lengjudeildin hefst á ÍATV

Fyrsti leikur Skagamanna í Lengjudeildinni 2023 verður í beinni á ÍATV í kvöld þegar Grindvíkingar koma í heimsókn á Akranesvöllinn. Upphitun hefst kl. 18:45 en flautað verður til leiks 19:15. Örn Arnarson og Sverrir Mar Smárason lýsa leiknum og Björn Þór Björnsson aðstoðar við upphitun. Góða skemmtun! Áfram ÍA!Lesa meira

true

Vilja finna nýjan stað fyrir grenndargáma

Á þessu ári voru settar upp þrjár grenndarstöðvar á Akranesi og eru þær staðsettar við Bíóhöllina á Vesturgötu, við bílastæði fyrir aftan Bókasafn Akraness og við Byggðasafnið í Görðum við Garðaholt. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag var tekin fyrir bókun Menningar- og safnanefndar frá fundi hennar um miðjan apríl þar sem fjallað…Lesa meira

true

Tilboði í endurgerð grunnskólalóða hafnað

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag fór Ásbjörn Egilsson verkefnastjóri yfir tilboð í framkvæmdir á lóðum við Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi. Eitt tilboð barst í verkefnið frá Bergþóri ehf. á Selfossi og hljóðaði það upp á tæpa 51 milljón, en kostnaðaráætlun var um 29 milljónir sem þýddi að tilboðið var um 76%…Lesa meira

true

Keppt í draghundasporti í Hvalfjarðarsveit

Palli Tryggvi Karlsson íbúi í Hvalfjarðarsveit og stofnandi hundasleðaskólans gengst um helgina fyrir nýstárlegri keppni, svokallaðri draghundakeppni. Hún er þannig að hundur, einn eða tveir, draga reiðhjól og keppt er í tíma á vegalengd sem er 15 kílómetrar í senn í fullorðinsflokki en fimm kílómetrar í unglingaflokki. Til keppni eru skráðir átta; sex í fullorðinsflokki…Lesa meira

true

Skagakonur unnu Fjölni í markaleik

Fjölnir og ÍA áttust við í fyrsta leik 2. umferðar í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Egilshöll í Grafarvogi. Fyrir mót var báðum þessum liðum spáð góðu gengi í sumar og því ljóst að um hörkuleik yrði að ræða. Samira Suleman kom gestunum yfir strax á 5. mínútu en…Lesa meira