
Keppt í draghundasporti í Hvalfjarðarsveit
Palli Tryggvi Karlsson íbúi í Hvalfjarðarsveit og stofnandi hundasleðaskólans gengst um helgina fyrir nýstárlegri keppni, svokallaðri draghundakeppni. Hún er þannig að hundur, einn eða tveir, draga reiðhjól og keppt er í tíma á vegalengd sem er 15 kílómetrar í senn í fullorðinsflokki en fimm kílómetrar í unglingaflokki.
Til keppni eru skráðir átta; sex í fullorðinsflokki og tveir í unglingaflokki. Ræst verður frá Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit í hádeginu á morgun, laugardaginn 6. maí. Farið verður inn Leirársveit og komið niður á Hvalfjarðarveg neðan við Miðfell og endað aftur á Laxárbakka. Í fullorðinsflokki verður keppt bæði laugardag og sunnudag, en í unglingaflokki er vegalengdin um fimm kílómetrar og keppt síðdegis á morgun, laugardag. Jafnt kynjahlutfall er í báðum aldursflokkum.
Hundarnir sem þjálfaðir hafa verið upp í þessu sporti eru af ýmsum kynjum. Keppendur koma frá nokkrum stöðum á landinu; þ.e. höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði, Akureyri og Hvalfjarðarsveit. Að sögn Palla er gestum velkomið að vera viðstaddir þegar ræst verður í keppnina og þegar þeir koma í mark um 45-60 mínútum síðar. Á laugardagskvöldinu verður borðað á Laxárbakka og býðst keppendum og gestum að fá 15% afslátt af matseðli.