Fréttir

true

Voot opnaði nýja verslun í Ólafsvík

Verslun Voot var formlega opnuð í dag í Ólafsvík. Hún er til húsa við Ólafsbraut 19 þar sem Brauðgerð Ólafsvíkur var áður. Húsnæðið fékkst afhent 1. febrúar síðastliðinn og síðan hafa iðnarmenn unnið hörðum höndum við að lagfæra það svo það henti undir starfsemi Voot. Björn Hilmarsson, sem var áður útibússtjóri hjá Olís, rekur þessa…Lesa meira

true

Kuldalegt um að litast í byrjun maí

Fremur kalt er víða um land og snjóað hefur niður á láglendi meðal annars á norðanverðu landinu, en einnig á Snæfellsnesi. Þessi mynd var tekin skömmu fyrir hádegi í dag í átt að Kirkjufellsfossi við Grundarfjörð. Jörð er alhvít.Lesa meira

true

Haldið áfram að steypa gangstéttar

Vinnufélagarnir Þorkell Gunnar Þorkelsson og Ásmundur Ragnarsson voru önnum kafnir við að slétta úr steypu sem nýbúið var að sturta meðfram Grundargötunni í Grundarfirði þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið hjá. Nú þegar vorið er komið er allt að fara á fullt við að klára að steypta gangstéttarnar sem ekki náðist að ljúka við síðasta haust.Lesa meira

true

Skagamenn drógu stutta stráið í gjaldskrárbreytingu Vegagerðarinnar

Helgi Hauksson íbúi á Akranesi hefur að jafnaði notað strætisvagn 57 til að ferðast milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins. Í aðsendri grein hér á vefnum færir Helgi í tal gríðarlega gjaldskrárhækkun samhliða því að Vegagerðin hefur nú tekið yfir rekstur landsbyggðarvagna og ný gjaldskrá tekið gildi. “Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar samgöngukortið mitt um 92% milli ára,…Lesa meira

true

Ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringrásarframleiðsla

Málþing um nýsköpun og nýjar viðskiptahugmyndir í ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringráðsarframleiðslu verður haldið á morgun, miðvikudaginn 4. maí milli klukkan 13 og 16, í Ársölum á Hvanneyri. Yfirskrift málþingsins er Ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringrásarframleiðsla. Erindin fara fram á ensku. Allir eru velkomnir en skrá þarf mætingu og er þátttaka…Lesa meira

true

Hjólað í vinnuna að hefjast

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert. Nú í ár fer Hjólað í vinnuna fram dagana 4. til 24. maí 2022. Meginmarkmið „Hjólað í vinnuna“ er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Fram og ÍA í tilþrifalitlum leik

Fram og ÍA mættust í þriðju umferð í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Framvellinum í Safamýri. Lítið markvert gerðist í leiknum á fyrsta korteri leiksins en á 18. mínútu fékk Skagamaðurinn Gísli Laxdal Unnarsson ágætis færi, náði góðu skoti að marki en markvörður Fram varði vel. Skömmu síðar…Lesa meira

true

Hvetja til notkunar kattakraga

Fuglavernd skorar á kattaeigendur að halda köttum inni yfir varptíma fugla. Kettir eru öflug og afkastamikil rándýr sem höggva stór skörð í stofna fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert. Á varptíma er því mikilvægt að lausaganga katta sé takmörkuð og sérstaklega yfir nóttina. Bjöllur og kattakragar eru í sumum tilfellum betri vörn…Lesa meira

true

Handrið við handverksaðstöðuna

Sæmundur Kristjánsson og Jón Eggertsson voru á laugardaginn að leggja lokahönd á smíði handriðs fyrir utan handverksaðsöðu eldri borgara í Ólafsvík. Þeir leyfðu þó myndatöku þegar ljósmyndari truflaði þá. Mikil og fjölbreytt starfsemi fer fram í húsinu. Þar er m.a. stundaður útskurður, rennismíði, tré-, gler- og leirvinna og því bráðnauðsynlegt að aðgengi sé sem best.Lesa meira

true

Stemning við löndun á Stapa á fyrsta degi strandveiða – myndaspyrpa

Það var líf og fjör á höfninni á Arnarstapa í dag þegar strandveiðisjómenn komu til hafnar eftir fyrstu veiðiferð sumarsins. Einnig var í hópnum að finna aflaklær sem gera út allt árið og veiða upp í kvóta. Gunnhildur Lind Hansdóttir ljósmyndari Skessuhorns brá sér bæjarleið og fangaði stemninguna í dag. Við leyfum myndum hennar að…Lesa meira