{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert. Nú í ár fer Hjólað í vinnuna fram dagana 4. til 24. maí 2022.\r\n\r\nMeginmarkmið „Hjólað í vinnuna“ er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta, hjólabretti og svo framvegis. Þeir sem nota almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.\r\n\r\nÍþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.",
"innerBlocks": []
}