Eyþór Aron Wöhler skoraði sitt fyrsta mark í sumar á móti Fram. Hér í leik gegn Stjörnunni í 1. umferðinni. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

Jafntefli hjá Fram og ÍA í tilþrifalitlum leik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fram og ÍA mættust í þriðju umferð í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Framvellinum í Safamýri. Lítið markvert gerðist í leiknum á fyrsta korteri leiksins en á 18. mínútu fékk Skagamaðurinn Gísli Laxdal Unnarsson ágætis færi, náði góðu skoti að marki en markvörður Fram varði vel. Skömmu síðar kom fyrsta mark leiksins þegar Albert Hafsteinsson fékk boltann á fjær í teignum, sendi góða sendingu fyrir markið þar sem Guðmundur Magnússon var á auðum sjó og renndi boltanum fram hjá Árna Snæ Ólafssyni markverði ÍA. Eftir þetta voru Skagamenn meira með boltann á meðan Framarar drógu lið sitt aðeins til baka en lítið gekk hjá ÍA að skapa sér færi. Fimm mínútum fyrir hálfleik dró loks til tíðinda. Þá tók Kaj Leó Í Bartalstovu hornspyrnu sem fór á kollinn á Hlyni Sævari Jónssyni í átt að marki þar sem Eyþóri Aron Wöhler tók hann með öxlinni og inn í markið þó tæpt væri. Fyrsta mark Eyþórs Arons í sumar og því var staðan jöfn þegar menn gengu til búningsherbergja, 1-1.\r\n\r\nÍ seinni hálfleik var fátt um fína drætti nánast allan tímann en undir lok leiksins færðist smá fjör í leikinn. Þá fengu liðin sitt hvort færið ef færi skyldi kalla og þó menn reyndu að ná sigurmarkinu undir blálokin rann það út í sandinn, lokaniðurstaðan jafntefli og líklega sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins.\r\n\r\nSkagamenn eru í sjötta sæti deildarinnar með fimm stig eftir þrjá leiki og enn taplausir. Breiðablik, KA og Valur eru efst með níu stig eftir þrjá leiki og Stjarnan í því fjórða með sjö stig. Á botninum sitja Keflvíkingar með fjögur töp í fjórum leikjum.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er gegn toppliði Breiðabliks næsta laugardag á Akranesvelli og hefst klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}
Jafntefli hjá Fram og ÍA í tilþrifalitlum leik - Skessuhorn