Fréttir

true

Ætlar að bjóða upp á skissutíma á netinu

Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi ætlar að bjóða upp á ókeypis skissutíma á netinu á milli kl. 16:30 og 17:00 næstu fjóra miðvikudaga. Skissutímarnir henta öllum aldurshópum og er ætlað að hjálpa fólki að skapa á þessum kóvidtímum. Þeir sem hafa áhuga geta svo haldið áfram fyrir 2000 krónur á mánuði. Áhugasamir geta haft samband…Lesa meira

true

Aron Bjarki gengur til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert eins árs samning við Aron Bjarka Jósepsson. Aron Bjarki kemur til félagsins frá KR þar sem hann lék 128 leiki í efstu deild og skoraði í þeim átta mörk. Aron Bjarki er 32 ára varnarmaður og hefur leikið með KR frá árinu 2011 en hann var þrisvar sinnum Íslandsmeistari og bikarmeistari…Lesa meira

true

Búast við lægri krafti á hitaveitunni á morgun

Vegna tengivinnu verður lægri þrýstingur á dreifikerfi hitaveitu á Akranesi og Borgarnesi þriðjudaginn 18. janúar. Nánar má sjá um það á Veitur.is bilanir. „Við biðjumst velvirðingar á óhjákvæmilegum óþægindum. Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni,”…Lesa meira

true

Verndandi arfgerðin ARR fundin í sauðfé

Straumhvörf eru að verða í sauðfjárrækt á Íslandi og baráttunni við riðuveiki. Á síðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) er greint frá því að búið sé að finna hina klassísku verndandi arfgerð (ARR) gegn riðuveiki í sauðfé. „Hin klassíska verndandi arfgerð gegn riðuveiki í sauðfé, ARR, hefur nú fundist í fyrsta sinn í íslenskri kind. Þetta er…Lesa meira

true

Janúarúthlutun verður á miðvikudaginn

Janúarúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram miðvikudaginn 19. janúar frá kl. 13-16 í Jónsbúð við Akursbraut 11. Umsækjendur geta sótt um mánudaginn 17. janúar og þriðjudaginn 18. janúar frá kl. 11-13 í síma 859-3000 og 859-3200 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum og það er staðgreisluskrá sem fæst á skrifstofu…Lesa meira

true

Mikil fjölgun smita á Vesturlandi

Alls greindust 1.080 með kórónuveiruna innanlands í gær og 114 á landamærunum. Þetta kemur fram á síðunni covid.is en 54 prósent af þeim sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 46 prósent utan sóttkvíar. 9.664 eru nú í einangrun á landinu vegna Covid-19 samanborið við 9.671 á föstudag þegar covid.is var…Lesa meira

true

Flæðir yfir veginn við Grundarfjörð

Gríðarleg úrkoma hefur verið á landinu. Hófst hún samhliða hlýindum í gærkvöldi. Mikið hafði snjóað dagana á undan og því var aukin hætta á asahláku þar sem úrkoman var mikil og leysingar miklar. Úrkoman var svo mikil að ræsið í Gilósnum við Grundarfjörð hafði ekki undan og vatn fór að flæða yfir veginn. Þarna rennur…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fær nýjan leikmann

Knattspyrnudeild Víkings í Ólafsvík hefur samið við enska leikmanninn Reece Mitchell um að leika með liðinu í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar. Reece er 26 ára kantmaður og þykir mjög hraður og áræðinn. Hann er uppalinn í akademíu Chelsea á Englandi og hefur spilað í neðri deildum á Englandi, þar á meðal 28…Lesa meira

true

Leikskólinn Vallarsel lokaður í dag vegna smits

Fyrir helgi kom upp kóvid smit á leikskólanum Vallarseli á Akranesi og er leikskólinn lokaður í dag. Börn og starfsfólki á deildinni Lundi voru skráð í sóttkví um helgina og til að ná betur utan um smitið munu allir starfsmenn sem hafa ekki nú þegar verið settir í sóttkví fara í skimun í dag. Það…Lesa meira