Horft í átt að Grundarfirði þar sem vatnið er farið að flæða yfir veginn en ræsið sjálft er rétt við bílinn frá Vegagerðinni. Ljósm. tfk.

Flæðir yfir veginn við Grundarfjörð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gríðarleg úrkoma hefur verið á landinu. Hófst hún samhliða hlýindum í gærkvöldi. Mikið hafði snjóað dagana á undan og því var aukin hætta á asahláku þar sem úrkoman var mikil og leysingar miklar. Úrkoman var svo mikil að ræsið í Gilósnum við Grundarfjörð hafði ekki undan og vatn fór að flæða yfir veginn. Þarna rennur lítil á sem fellur í gegnum Grafargil en í dag var þessi litli árfarvegur sem beljandi stórfljót þannig að ræsið hafði ekki undan.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50376\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50376 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Flaedir-yfir-veginn-1-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Vegegerðin vaktar veginn og fylgist með aðstæðum.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Flæðir yfir veginn við Grundarfjörð - Skessuhorn