{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrir helgi kom upp kóvid smit á leikskólanum Vallarseli á Akranesi og er leikskólinn lokaður í dag. Börn og starfsfólki á deildinni Lundi voru skráð í sóttkví um helgina og til að ná betur utan um smitið munu allir starfsmenn sem hafa ekki nú þegar verið settir í sóttkví fara í skimun í dag. Það mun svo koma í ljós síðar í dag hvort að leikskólinn verði opnaður samkvæmt venju á morgun, þriðjudag. Lundur verður áfram lokaður fram til miðvikudags en þá fara börn og starfsfólk á þeirri deild í skimun.\r\n\r\nÞá er staðfest smit á Holti á Garðaseli og er deildin nú komin í sóttkví en boðuð skimun er á morgun, þriðjudag. Í byrjun síðustu viku kom upp smit á deildinni Vík í sama leikskóla og fóru börnin sem voru með einkenni í skimun í gær, sunnudag.\r\n\r\nÞá hefur nemandi greinst með kóvid í 9. bekk í Brekkubæjarskóla og því hefur verið ákveðið að allir nemendur 9. bekkjar sem voru í skólanum mánudaginn 10. janúar þurfi að fara í sóttkví. Þeir nemendur sem eru búnir að fá kóvid og þeir sem voru ekki í skólanum á mánudag þurfa ekki að fara í sóttkví.\r\n\r\nAlmannavarnarnefnd Vesturlands hefur áréttað þau tilmæli sóttvarnayfirvalda að fólk hugi sérstaklega að því að mæta ekki til vinnu eða í skóla ef það finnur fyrir einkennum eða það gruni að það sé með smit. Þetta á jafnt við um þá sem eru bólusettir og þá sem eru það ekki. Ef einstaklingar finna fyrir einkennum er mikilvægt að halda sig heima og skrá sig í kóvid PCR-próf í samræmi við leiðbeiningar á covid.is. Þetta á jafnt við börn sem og fullorðna.",
"innerBlocks": []
}
Leikskólinn Vallarsel lokaður í dag vegna smits - Skessuhorn