Fréttir

true

Lilja Björg Ágústsdóttir ráðin sviðsstjóri stjórnsýslusviðs

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar fyrr í dag var lögð fram tillaga frá sveitarstjóra um ráðningu nýs sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Flosi Sigurðsson sem gegnt hefur starfinu sagði því lausu í haust. Byggðarráð samþykkti tillögu sveitarstjóra þess efnis að ráða Lilju Björgu Ágústsdóttur í starf sviðsstjóra og vísar þeirri ákvörðun til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn. Alls bárust 12 umsóknir…Lesa meira

true

Gæti snjóað töluvert að morgni gamlársdags

Vegagerðin vekur athygli á slæmri veðurspá suðvestan- og sunnanlands að morgni gamlársdags, á laugardaginn. Þá er gert ráð fyrir að hríðarbakki gangi yfir með suðaustan 10-17 m/s og skafrenningi. Hætt er við að víða verði ófærð í kjölfarið, m.a. á höfuðborgarsvæðinu og víðar um suðvestanvert landið.Lesa meira

true

Fjallar um velferð hrossa á útigangi

Veturinn 2020 birtist í Eiðfaxa grein eftir Dr. Sigríði Björnsdóttur, sérgreinadýralæknir hrossa hjá MAST. Í greininni var farið yfir velferð hrossa í útigangi en greinin hefur nú verið endurbirt þar sem eigendur hrossa hafa á undanförnum vikum verið að gefa útigangi sínum. Í grein Sigríðar segir að haustið sé mikilvægasti tíminn fyrir hross að undirbúa sig fyrir…Lesa meira

true

Byggðastofnun hefur útbúið kort yfir starfsstöðvar sem býðst fólki í óstaðbundnum störfum

Á vef Byggðastofnunar voru nýlega tekin saman þau húsnæði sem í boði eru á landinu fyrir fólk í óstaðbundnum störfum. Kortið er útbúið til að styðja við núgildandi byggðaáætlun sem kveður á að um 10% starfsmanna ráðuneyta og stofnana þeirra geti starfað óháð staðsetningu árið 2024. Á vef Byggðastofnunar kemur fram að yfir 100 starfsstöðvar…Lesa meira

true

Skattabreytingar sem taka gildi um áramót

Um áramótin taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis. Hér verður fjallað um breytingar á tekjuskatti, barnabætur, vaxtabætur, nefskatt, erfðafjárskatt, bifreiðagjöld, vörugjöld og fleira. Breytingar verða á tekjuskatti…Lesa meira

true

Segir hækkun bifreiðagjalds hreinan landsbyggðarskatt

Nú um áramótin taka gildi fjölmargar breytingar á sköttum og skyldum einstaklinga og fyrirtækja í landinu. Á meðal þessara breytinga er að bifreiðagjald mun tvöfaldast. Breytingunni á bifreiðagjaldi er ætlað að styrkja tekjustofna ríkissjóðs af ökutækjum á eldsneyti en á síðustu árum hafa þeir dregist saman vegna fjölgunar á vistvænum og sparneytnum fólksbílum. Aðrar fjárhæðir…Lesa meira

true

Sveitarfélög hækka útsvarsálagningu en tekjuskattur lækkar á móti

Um miðjan desember samdi Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga í landinu, við Ríkissjóð um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk. Í samkomulaginu felst að hámarksútsvar sveitarfélaga, sem nú er 14,52%, skal hækkað um 0,22 prósentustig samhliða lækkun á tekjuskatti um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum og munu heildarálögur á skattgreiðendur því ekki…Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast

Björgunarsveitir víðs vegar um landið eru nú byrjaðar flugeldasölu, en salan er til að standa straum af rekstri sveitanna. Mismunandi er milli sveita hversu stór þáttur í heildar fjármögnun, flugeldasalan er, en hún er allt að 80% af veltu sumra. Þeim sem eru á móti notkun flugelda er bent á að hægt er að gerast…Lesa meira

true

Áréttað um búnað í bílum í vetrarfærð

Í ljósi atburða undanfarinna daga vill Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetja alla til að huga vel að útbúnaði í bifreiðum sínum. Ferðalag á vanbúnum bíl getur ekki bara þýtt vandræði fyrir bílstjóra hans, heldur marga aðra sem ekki komast framhjá.„Það er gott að vera með skóflu í bílnum, hlý vetrarföt og góða skó, ef þú þarft að…Lesa meira

true

Heiðar Örn og Bjarni Kristinn stefna á sætaskipti

Tekist hefur samkomulag um að varaslökkviliðsstjóri og slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar hafi sætaskipti 1. apríl næstkomandi. Heiðar Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri, hafði sagt upp störfum miðað við áramót, en hefur nú dregið uppsögn sína til baka og tekur við starfi slökkviliðsstjóra 1. apríl í vor. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri verður þá um leið varaslökkviliðsstjóri og verkefnisstjóri. „Ég er…Lesa meira