
Fjallar um velferð hrossa á útigangi
Veturinn 2020 birtist í Eiðfaxa grein eftir Dr. Sigríði Björnsdóttur, sérgreinadýralæknir hrossa hjá MAST. Í greininni var farið yfir velferð hrossa í útigangi en greinin hefur nú verið endurbirt þar sem eigendur hrossa hafa á undanförnum vikum verið að gefa útigangi sínum. Í grein Sigríðar segir að haustið sé mikilvægasti tíminn fyrir hross að undirbúa sig fyrir komandi vetur en þá safni þau forða sem ver þau fyrir komandi tímum. Sigríður hvetur bændur til að velja gjafarstaði vel með tilliti til veðurs og slysahættu en hross forðast aðþrengdar aðstæður og hávaða.