Skjáskot af vef byggðastofnunar.

Byggðastofnun hefur útbúið kort yfir starfsstöðvar sem býðst fólki í óstaðbundnum störfum

Á vef Byggðastofnunar voru nýlega tekin saman þau húsnæði sem í boði eru á landinu fyrir fólk í óstaðbundnum störfum. Kortið er útbúið til að styðja við núgildandi byggðaáætlun sem kveður á að um 10% starfsmanna ráðuneyta og stofnana þeirra geti starfað óháð staðsetningu árið 2024. Á vef Byggðastofnunar kemur fram að yfir 100 starfsstöðvar megi finna víðs vegar um landið og fólk á landsbyggðinni þess vegna vel í stakk búið til að starfa án staðsetningar. 

Byggðastofnun hefur útbúið kort yfir starfsstöðvar sem býðst fólki í óstaðbundnum störfum - Skessuhorn