Klárir í slaginn. Ljósm. úr safni.

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast

Björgunarsveitir víðs vegar um landið eru nú byrjaðar flugeldasölu, en salan er til að standa straum af rekstri sveitanna. Mismunandi er milli sveita hversu stór þáttur í heildar fjármögnun, flugeldasalan er, en hún er allt að 80% af veltu sumra. Þeim sem eru á móti notkun flugelda er bent á að hægt er að gerast bakvörður björgunarsveitanna, styrkja þær með beinum hætti einu sinni á ári eða kaupa af þeim rótarskot. Hér á Vesturlandi eru sölustaðir átta talsins auk Reykhóla:

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast - Skessuhorn