Fréttir

true

Margrét Sif ráðin skólastjóri Leikskólans Sólvalla

Margrét Sif Sævarsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri við Leikskólann Sólvelli í Grundarfirði frá og með 1. janúar 2023. Þetta kemur fram í færslu á vef Grundarfjarðarbæjar. Margrét hefur lokið framhaldsmenntun MT í kennslufræðum með áherslu á íslensku frá Háskóla Íslands, auk þess sem hún hefur lokið BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Margrét…Lesa meira

true

Vel heppnað æskulýðsball í Borgarnesi

Fimmtudaginn 17. nóvember síðastliðinn var Æskulýðsballið haldið í Hjálmakletti. Um er að ræða viðburð sem félagsmiðstöðin Óðal í Borgarnesi stendur fyrir árlega fyrir öll ungmenni á Vesturlandi. Fram kemur í frétt á heimasíðu Borgarbyggðar að um 320 ungmenni hefðu mætt í Borgarnes til þess að skemmta sér saman og sáu DJ Egill Spegill og Herra…Lesa meira

true

Útvarp Akranes er komið í loftið

Útvarp Akranes er í hugum margra Skagamanna órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum en útvarpað er ætíð fyrstu helgina í aðventu. Nú klukkan 13 í dag fór í loftið fyrsti dagskrárliður útvarpsins Skaginn syngur inn jólin í umsjón Óla Palla. Þetta er í 35. skipti sem Útvarp Akraness fer í loftið og er dagskráin fjölbreytt í ár…Lesa meira

true

Gjöld fyrir þjónustu við börn hækka hvað mest hjá Borgarbyggð og Akraneskaupstað

Mikill munur er á breytingum á gjöldum fyrir þjónustu við börn milli sveitarfélaga á tímabilinu frá því að lífskjarasamningarnir tóku gildi í byrjun árs 2019 til dagsins í dag. Þetta kemur fram í samantekt Verðlagseftirlits ASÍ sem tók saman breytingar á leikskólagjöldum, skóladagvistunargjöldum og skólamat frá 2019 – 2022 hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins. Gjöld…Lesa meira

true

Fjölskyldutónleikar á sunnudaginn með Dúó Stemmu

Lokatónleikar Kalmans listafélags á þessu ári verða fjölskyldutónleikar sem haldnir verða í Vinaminni á Akranesi á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóvember nk. og hefjast kl. 14. Tvíeykið og gleðipinnarnir í Dúó Stemmu, þau Herdís Anna og Steef, bregða á leik og flytja vetrarskemmdegisdagskrá með jólalegu ívafi fyrir alla fjölskylduna. Þau munu leika sér með…Lesa meira

true

Aukin þjónusta innanbæjarstrætó á Akranesi

Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að ákveðið hafi verið að auka þjónustu innanbæjarstrætó á Akranesi. Auka strætisvagn sem kallaður verður „Leið 2“ mun nú fara stóran hring um bæinn tvisvar á morgnana fyrir skólabyrjun, einn hring í hádegi og tvo hringi eftir að frístundastrætó hefur lokið akstri seinni part dags. Allar ferðir með vagninum eru…Lesa meira

true

Roðagylltur heimur gegn kynbundnu ofbeldi

Soroptimistar um allan heim munu líkt og undanfarin ár slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis…Lesa meira

true

Límtré Vírnet með gæðavottun og eflir starfsstöðina í Borgarnesi

Vel hefur gengið hjá Límtré Vírneti undanfarið og horft hefur verið til þess að bæta tækjabúnað í öllum deildum fyrirtækisins til að mæta auknum verkefnum og stytta afgreiðslutíma. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á þremur stöðum í dag; í Reykjavík, á Flúðum og í Borgarnesi. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss…Lesa meira

true

Fimmtíu fengu nýliðastuðning í landbúnaði

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2022 í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Styrkur til einstakra nýliða getur að hámarki numið 9 milljónum króna og allt að 20% af fjárfestingarkostnaði á ári, en heimilt…Lesa meira