Fréttir

true

Enginn slasaðist þegar byggingarkrani féll á Akraneshöllina

Rosalegar drunur og skruðningar kváðu við inni í Akraneshöllinni á Akranesi þegar byggingarkrani féll ofan á höllina, nú rétt í þessu. Kraninn fór í gegnum loftið á höllinni og myndaðist þar stórt gat. Mikil mildi var að enginn slasaðist þegar atvikið átti sér stað því brot hrundu úr loftinu. Krakkar sem voru á fótboltaæfingu urðu…Lesa meira

true

Íbúðir á Þjóðbraut 3 afhentar íbúum

Fimmtudaginn 10. nóvember sl. voru fyrstu íbúðirnar á Þjóðbraut 3 á Akranesi formlega afhentar skjólstæðingum Brákar hses. og leigufélagsins Bríetar. Það var hluti fatlaðra íbúa á Akranesi sem fengu þar afhentar nýjar íbúðir og var með því tryggt öruggt húsnæði til frambúðar. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, bæjarstjórn Akraness auk fulltrúa frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Brák…Lesa meira

true

Biðskylda af Kaldadalsvegi

Á meðfylgjandi mynd er Guðmundur Finnsson starfsmaður Vegagerðarinnar að setja upp merkingar á vegamótum Kaldadalsvegar, ofan við Húsafell. Mikil umferð er mestallt árið á þessum stað og brýnt að bæta merkingar.Lesa meira

true

Línan lögð og svo grillað í mannskapinn

Á meðfylgjandi mynd er Víðir Haraldsson skipstjóri á línubátnum Lilju SH frá Rifi. Eftir að línan hafði verið lögð í nótt tók hann sig til og grillaði hamborgara fyrir mannskapinn. Vakti það mikla ánægju en þrír eru í áhöfninni ásamt Víði. Þeirra á meðal er Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns sem er í afleysingatúr um borð…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu í Álftnesingum

Álftanes og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Forsetahöllinni á Álftanesi. Í fyrsta leikhluta var nánast jafnt á öllum tölum og munurinn aldrei meiri en fjögur stig á milli liðanna. Dúi Þór Jónsson hitti úr tveimur vítum fyrir heimamenn undir lokin og sá til þess að staðan…Lesa meira

true

Guðlaugur hefur opnað myndlistarsýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar

Síðastliðna helgi opnaði Guðlaugur Jón Bjarnason myndlistarmaður sýningu á verkum sínum í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Hann er fæddur á Selfossi árið 1949 og er ævistarf hans sjómennska og málaralist. Fyrir nokkrum árum varð Guðlaugur fyrir því óláni að detta á heimili sínu og liggja bjargarlaus í talsverðan tíma, gat ekki látið vita af sér.…Lesa meira

true

Úttekt á húsnæði tónlistarskólans og bókasafnsins til kynningar

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar 2. nóvember síðastliðinn var lögð fram til kynningar nýleg úttekt á húsnæði Tónlistarskóla Akraness og Bókasafns Akraness hvað varðar loftgæði í þessum byggingum, en um er að ræða eignir í eigu bæjarins. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri segir varðandi það hvenær úttektin verði kynnt almenningi að fyrst þurfi að ræða…Lesa meira

true

Drög að reglugerð um íbúakosningar í samráðsgátt

Drög að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Öll hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 28. nóvember 2022. Í reglugerðinni eru sett fram lágmarksatriði sem fram þurfa að koma í reglum sveitarfélaga um íbúakosningar. Gerðar voru breytingar á…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður á bílastæðinu við Stillholt 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 15. nóvember, frá kl. 10:00 – 17:00. Blóðbankinn hvetur alla sem mega gefa blóð til að mæta.  Lesa meira

true

Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lokið

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2021. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að álögð gjöld nema samtals 218,3 milljörðum króna og hækka um 38 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatta eru bæði til hækkunar og lækkunar. Stærstu einstöku breytinguna er að finna í tekjuskatti lögaðila en þar…Lesa meira