Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lokið

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2021. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að álögð gjöld nema samtals 218,3 milljörðum króna og hækka um 38 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatta eru bæði til hækkunar og lækkunar. Stærstu einstöku breytinguna er að finna í tekjuskatti lögaðila en þar aukast tekjur ríkissjóðs um 31,1 ma.kr., eða 44,9%, milli ára. Stærsta hlutfallslega breytingin varð á sérstökum fjársýsluskatti sem ríflega tvöfaldaðist milli ára en þar sem hann er viðbótartekjuskattur á tekjuskattstofn umfram 1 ma.kr. er sterk fylgni milli hans og hefðbundins tekjuskatts. Tryggingagjald hækkar um 5,2 ma.kr. frá fyrra ári, eða 5,4%, þrátt fyrir tímabundna lækkun gjaldsins árið 2021.

Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lokið - Skessuhorn