Fréttir

true

Afhjúpa minnismerki um eina skipaskurð landsins

Sigurður Þórólfsson frá Innri-Fagradal hefur verið mikill áhugamaður um að viðhalda munnmælum um eina skipaskurð landsins og merkja hann. Flæðilækurinn er 430 metra langur og um 18 metra jafnbreiður en mjókkar nokkuð síðustu 30 metrana. Hann liggur til suðurs í átt að Staðarhóli frá Hvolsá í Saurbæ, skammt vestan við Kirkjuhvol, núverandi Staðarhólskirkju. Nú á…Lesa meira

true

Sigríður Elín tók sæti á þingi

Sigríður Elín Sigurðardóttir, 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, tók í vikunni sæti á Alþingi, í forföllum Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur utanríkisráðherra. Sigríður Elín flutti í dag jómfrúarræðu sína á þingi. Hún er fjórði yngsti varaþingmaður sem tekur sæti á Alþingi, en hún er 21 árs, fædd í desember 2000.Lesa meira

true

Tveir læknar hafa sótt um vinnu í Borgarnesi

Fyrir nokkru auglýsti Heilbrigðisstofnun Vesturlands eftir læknum til starfa við heilsugæslustöðina í Borgarnesi og rann umsóknarfrestur út sl. mánudagskvöld. Fram að þessu hafa ekki borist umsóknir þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar, en þau gleðitíðindi urðu nú að tvær umsóknir bárust. Að sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra HVE verður kapp lagt á að ganga frá ráðningu læknanna…Lesa meira

true

Sigraði í rafhjólakeppni Bláa lónsins

Dagný Pétursdóttir frá Borgarnesi keppti í Bláalónsþrautinni sem fór fram laugardaginn 11. júní. Dagný stakk þar keppinauta sína af þegar lítið var eftir af vegalengdinni. Fór það svo að hún var fyrst allra á rafhjóli og er þar með fyrsti sigurvegari keppanda frá nýlega stofnuðu Hjólreiðafélagi Vesturlands. Leiðin var 60 kílómetrar og keppa í heildina…Lesa meira

true

Landlæknir kynnti Lýðheilsuvísa Vesturlands

Undanfarnar vikur hefur Landlæknir ferðast milli landshluta til að kynna stöðu lýðheilsuvísa í hverju umdæmi fyrir sig. Lýðheilsuvísar hafa verið mældir síðastliðin sjö ár en þeir gefa til kynna heilsufarsstöðu á landsvísu sem og stöðuna í hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig. Til dæmis voru teknir fyrir heilsufarsvísar um stöðu á orkudrykkjaneyslu, þunglyndislyfjanotkun, skimun fyrir krabbameini, almennum…Lesa meira

true

Hálfur þriðji milljarður til að mæta alvarlegri stöðu í landbúnaði

Spretthópur, sem matvælaráðherra skipaði vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi, hefur nú skilað tillögum sínum og voru þær lagðar fyrir ríkisstjórn í morgun. „Ljóst er að bregðast þarf við þeim aðstæðum sem uppi eru vegna verðhækkana á helstu aðföngum í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Sú þróun hefur haft og mun hafa alvarleg áhrif…Lesa meira

true

Ómskoðunartæki gefið í sjúkrabíla í Snæfellsbæ

Lionsklúbbarnir í Snæfellsbæ; Rán, Þerna, Nesþinga og Ólafsvíkur, afhentu á dögunum ómskoðunartæki í sjúkrabifreið HVE í Snæfellsbæ. Tækið er af gerðinni Wellue EagleView og nýtist gjöfin í bráðatilfellum sem og almennum sjúkraflutningum, en tæki þetta gerir sjúkraflutningafólki kleift að óma hjarta, lungu, æðar og innvortis blæðingar svo dæmi séu tekin en tæki sem þetta var…Lesa meira

true

Sumartónleikarnir í Saurbæ að hefjast

Dagskrá Sumartónleikanna í Hallgrímskirkju í Saurbæ er komin út en verkefnið er nú á fjórða ári. Í tónleikanefnd eru þau Ásta Jenný Magnúsdóttir, Jósep Gíslason, Margrét Bóasdóttir og Valdís Inga Valgarðsdóttir. Í þetta sinn valdi nefndin úr rúmlega fimmtíu umsóknum listamanna. Upphafstónleikarnir verða næstkomandi sunnudag, 19. júní þar sem boðið verður upp á sumarsveiflu Guitar…Lesa meira

true

Lokað í Hvalfjarðargöngum næstu kvöld og nætur vegna alþrifa

Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að Hvalfjarðargöngin verða lokuð vegna alþrifa nokkrar nætur í vikunni. Lokað verður í kvöld, þriðjudaginn 14. júní og miðvikudaginn 15. júní, og verður lokunin báða þessa daga frá klukkan 22:00 og til 06.30 og verður umferð beint um Hvalfjörð um veg 47. Athygli vekur að lokun hefst klukkan 22 en…Lesa meira

true

Báta- og hlunnindasýningin opnuð á Reykhólum

Báta- og hlunnindasýningin var opnuð á ný á dögunum. Á sýningunni er yfirlit um hlunnindanytjar við Breiðafjörð og í Breiðafjarðareyjum. Einnig er fróðleikur um dýra- og fuglalíf. Á bátasafninu eru einkum súðbyrðingar með breiðfirsku lagi, einnig er þar nokkuð stórt safn gamalla bátavéla, sumar sjaldgæfar. Bátasafnið hefur jafnframt verið verkstæði þar sem unnið hefur verið…Lesa meira