Alma Möller ávarpar fundargesti. Ljósm. sþ.
Landlæknir kynnti Lýðheilsuvísa Vesturlands

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarnar vikur hefur Landlæknir ferðast milli landshluta til að kynna stöðu lýðheilsuvísa í hverju umdæmi fyrir sig. Lýðheilsuvísar hafa verið mældir síðastliðin sjö ár en þeir gefa til kynna heilsufarsstöðu á landsvísu sem og stöðuna í hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig. Til dæmis voru teknir fyrir heilsufarsvísar um stöðu á orkudrykkjaneyslu, þunglyndislyfjanotkun, skimun fyrir krabbameini, almennum heilsugæsluheimsóknum og fleiru.\r\n\r\nFundur var haldinn á Akranesi í gær þar sem farið var yfir stöðu Vesturlands samanborið við landið í heild sinni. Á fundinum flutti Alma Möller landlæknir ávarp. Talaði hún um áskoranir í heilbrigðisþjónustu sem eru m.a. skortur á starfsfólki og flóknara umhverfi. Til að mæta þessum áskorunum vill Alma bæta lýðheilsu og forvarnir, koma þannig í veg fyrir sjúkdóma og nýta heilbrigðiskerfið skynsamlega. Kom hún inn á mikilvægi góðra svefnvenja sem annars hefur áhrif á ónæmiskerfi og aðra mögulega heilsufarskvilla sé svefn í ólagi. ,,Svefn bætir minni, hjálpar okkur að halda kjörþyngd, vinnur gegn þunglyndi og kvíða og er fyrirbyggjandi fyrir heilabilun og krabbamein,“ sagði Alma.\r\n\r\nAuk Ölmu tóku til máls þær Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá embætti landlæknis, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis og Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Hér fyrir neðan má sjá dæmi um lýðheilsuvísa á Vesturlandi sem eru frábrugðnir tölum fyrir landið í heild.\r\n
\r\n \t
Fleiri framhaldsskólanemar meta andlega heilsu góða.
\r\n \t
Gosdrykkjaneysla fullorðinna er minni.
\r\n \t
Þátttaka 60 ára og eldri í inflúensubólusetningu er meiri.
\r\n \t
Færri börn í 1. bekk nota virkan ferðamáta.
\r\n \t
Minni þátttaka barna í 8.-10. bekk í skipulögðu íþróttastarfi.
\r\n \t
Þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini er minni.
\r\n

"innerBlocks": []