Fréttir

true

Útvarp Óðal fer í loftið á mánudaginn

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, fer í loftið á mánudagsmorguninn næsta og standa útsendingar yfir í fimm daga frá klukkan 10-23 en lýkur klukkan 18.30 á föstudaginn. Fyrir marga er Útvarp Óðal órjúfanlegur hluti af jólahátíðinni og er dagskráin í ár ekki af verri endanum. „Fyrir marga er Útvarp Óðal fastur liður í…Lesa meira

true

Jólastemning á Erpsstöðum á sunnudaginn

„Við ætlum að vera með opið á sunnudaginn og vera með notalega stemningu. Nokkrir aðilar verða með bás hjá okkur og pláss fyrir fleiri að vera með. Verðum með tilboð á ýmsum vörum. Úrval af jólatrévöru frá Ástu Ósk, Skyrgámur mætir á svæðið klukkan 16 og heilsar upp á gesti,“ segir í tilkynningu frá Rjómabúinu…Lesa meira

true

Brynjar framlengir við Víking

Víkingur Ólafsvík skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Brynjar Vilhjálmsson 1. desember síðastliðinn. Brynjar er fæddur 2000 og uppalinn í Ólafsvík og getur leyst ýmsar stöður á vellinum. Hann lék 14 leiki fyrir Víking í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.Lesa meira

true

Hvammshlíðardagatal í fjórða skipti

Hversdagslegar, en samt sérstakar myndir í bland við fróðleik í kringum búskap og sveitalífið fyrr og nú – það hefur verið sérstæða Hvammshlíðardagatalsins síðan það kom út í fyrsta skipti haustið 2018. Það ár var tilgangurinn sá að fjármagna kaup á dráttarvél sem tókst vonum framar og blessaður Zetorinn 7245, árg. 1990, hefur komið fram…Lesa meira

true

Frístundahús og bílskúrar ekki lengur háð útgáfu byggingarleyfis

Ný reglugerð hefur tekið gildi sem ætlað er að straumlínulaga leyfisveitingaferlið við húsbyggingar. Reglugerðin kveður á um upptöku nýs kerfis við flokkun mannvirkja, sem hafa mun bein áhrif á eftirlit sveitarfélaga, meðferð umsókna og útgáfu leyfa vegna allrar mannvirkjagerðar. Nýja flokkunarkerfið þýðir að bygging einfaldari mannvirkja, svo sem frístundahúsa og bílskúra, mun ekki lengur vera…Lesa meira

true

Ekki bara skip sem koma við í Grundarfirði

Eins og fram hefur komið undanfarnar vikur hefur verið mikil umferð um Grundarfjarðarhöfn síðustu misserin og hefur hvert skipið á fætur öðru komið inn til löndunar. En það eru ekki bara skip sem spóka sig um í höfninni því að stærðarinnar selur hefur verið að svamla þarna um annað slagið líka. Í blíðviðrinu síðasta miðvikudag…Lesa meira

true

Leikmenn af Vesturlandi í æfingahópi KKÍ

Fram undan í desember eru æfingar yngri landsliða hjá Körfuknattleikssambandi Íslands. Þjálfarar landsliða U15, U16 og U18 drengja og stúlkna hafa valið um 30 manna æfingahópa sína og boðað leikmenn til æfinga í desember. Um er að ræða fyrstu æfingahópa liðanna fyrir næsta sumar en þá er stefnt að þátttöku í mótum fyrir öll lið…Lesa meira

true

Lögreglan semur um sérfræðiráðgjöf í umhverfismálum

Nýverið var undirritaður samningur milli lögreglustjórans á Vesturlandi og fyrirtækis Stefáns Gíslasonar í Borgarnesi, Umhverfisráðgjafar Íslands, um sérfræðiráðgjöf vegna loftslagsstefnu, aðgerðaráætlunar og grænna skrefa í ríkisrekstri. Stefán mun samkvæmt samningnum vinna náið með umhverfisnefnd lögregluembættisins varðandi öll ofangreind atriði. „Um gríðarstórt verkefni er að ræða sem mun ná til nær allra rekstrarþátta embættisins. Það að…Lesa meira

true

Bergur Líndal opnar þriðja gluggann

Þriðja útsending á Skaginn syngur inn jólin er komin í loftið. Bergur Líndal syngur þriðja jólalagið að þessu sinni en hann er þekktur fyrir að vera mikill rokkari og hefur verið í mörgum þungarokkssveitum á síðustu árum. Bergur söng þrjú ár í röð á jólatónleikum á Gamla Kaupfélaginu á Þorláksmessu fyrir 6 til 7  árum…Lesa meira

true

Fyrirhuguð loðnubræðsla mun skerðast vegna skorts á rafmagni

Landsvirkjun hefur ákveðið að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar, en verksmiðjurnar hafa samning við fyrirtækið um kaup á svokallaðri skerðanlegri orku, gegn hagstæðara verði. Nú mun í fyrsta skipti um árabil reyna á slíka skerðingu orkuafhendingar vegna orkuskorts. Þetta kemur sér sérlega illa í vetur í ljósi þess að útlit er fyrir…Lesa meira