
Í gær voru opnuð tilboð í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum fyrir árin 2022 til 2024. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á sléttar 70 milljónir króna. Gísli Stefán Jónsson ehf. á Akranesi var lægstbjóðandi með 79.980.000 krónur sem er um 14% yfir kostnaðaráætlun. Vaka hf. í Reykjavík bauð talsvert hærra, 187.673.000 krónur en það er um 168% yfir kostnaðaráætlun.…Lesa meira








