
Matvælastofnun varar áfram við tínslu og neyslu á kræklingi úr Hvalfirði þar sem DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum þegar sýni voru tekin 22. október sl. DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu en líða hjá á nokkrum dögum.Lesa meira








