Fréttir

true

Vökudagar að hefjast á Akranesi

Vökudagar hefjast formlega á Akranesi á morgun, fimmtudag, og verður setningarathöfnin á Byggðasafninu í Görðum klukkan 18:00. Þar verða meðal annars afhent menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2021. Árbók Akurnesinga hlaut verðlaunin á síðasta ári. Að sögn Sigrúnar Ágústu hjá Akraneskaupstað er mikil stemning fyrir hátíðinni, bæði meðal barna og fullorðinna og þátttakan góð. Meðal barnanna er spenningurinn…Lesa meira

true

Faraldurinn heldur í sókn

Nýgengi smita innanlands af Covid-19 er nú 232,1 á hverja 100 þúsund íbúa og er faraldurinn í sókn. Samkvæmt Covid.is eru nú 43 í einangrun á Vesturlandi og 240 að auki í sóttkví. Ekki er tilgreint hvar í landshlutanum smitin eru, en þó liggur fyrir, samkvæmt upplýsingum á vef Dalabyggðar, að 17 þessara smita eru…Lesa meira

true

Körfuboltavöllur að verða til

Uppbygging körfuboltavallar á lóð Grunnskólans í Stykkishólmi gengur vel en það verkefni er þriðji áfangi í uppbyggingu skólalóðarinnar. Völlurinn er upphitaður 28×15 metrar að stærð með tveimur stórum körfum og fjórum minni. „Þetta verkefni er vel við hæfi í ljósi þeirra áherslna okkar um eflingu körfuboltans í Stykkishólmsbæ,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar í…Lesa meira

true

H veitingar taka við Food Station

Í gær var formlega gengið frá því að H Veitingar taka við rekstri Food Station eða Fóðurstöðvarinnar í Borgarnesi af Kaupfélagi Borgfirðinga. Nýr matseðill tekur gildi á morgun, fimmtudag, og mun í tilefni þess söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi, skemmta gestum fram á kvöld. Kaldur verður á krana og kynntar verða spennandi nýjungar.Lesa meira

true

Aðgengi að bílastæði lokað

Þessa dagana er að hefjast vinna við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum á Akranesi. Í fyrsta áfanga mun Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar sjá um gröft fyrir mannvirkinu og breytingar á lögnum í jörðu ásamt því að girða af vinnusvæðið. Við þá framkvæmd mun allt bílastæðið framan við innganginn að sundlauginni verða lokuð almenningi. Einnig munu gönguleiðir að…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á nýliðakynningu slökkviliðsins

Í gærkvöldi stóð Slökkvilið Borgarbyggðar fyrir kynningu á starfseminni. Slökkviliðið þarf að fjölga í hópnum til að ná að fullmanna allar starfsstöðvar og var því vonast eftir að fá nokkra áhugasama með að bjóða upp á kynningu. Mætingin fór hins vegar fram úr björtustu vonum slökkviliðsins, en alls mættu 32 á kynninguna. Bjarni Kristinn Þorsteinsson…Lesa meira

true

Nemendur poppuðu yfir opnum eldi

Nemendur 1. bekkjar í Grunnskóla Snæfellsbæjar skelltu sér út í list- og verkgreinatíma í liðinni viku. Tilefnið var að prófa nýja poppkorns körfu sem skólinn festi kaup á á dögunum til að nota í útikennslu. Poppkorns karfan gerir nemendum kleift að fylgjast með því þegar poppmaísinn springur út og breytist í brakandi poppkorn. Veðrið var…Lesa meira

true

Sacred Flora sýnt á Rökkurdögum

Listakonurnar Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome hafa undanfarna daga dvalið í vinnustofu Artak350 í Grundarfirði. Þar hafa þær unnið að sýningu sem þær munu halda í Sögumiðstöðinni á morgun, miðvikudaginn 27. október. Gjörningurinn Sacred er samvinnuverkefni Þóru Sólveigar og Liv síðan 2016. Myndbandsverk þeirra, sem nefnist Standing, verður sýnt ásamt tónlistar- og myndbandsverkefninu Flora…Lesa meira

true

Faxaflóasundið var synt í Jaðarsbakkalaug

Hressir sundmenn Sundfélags Akraness stóðu sig vel í óhefðbundnu Faxaflóasundi sem fram fór síðasta föstudag. Þeir syntu 21 kílómetra í Jaðarsbakkalaug sem er sama vegalengd og tekur að synda á milli Akraness og Reykjavíkur. Stefnan var að synda meðfram Langasandi en veðrið var mjög óhagstætt til að synda í sjónum og því var ákveðið að…Lesa meira

true

Netspjall um innflutning gæludýra

Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda dýraeigendum undirbúning innflutnings hunda og katta. Á netspjallinu er spurningum um inn- og útflutning hunda og katta svarað. Reiknivélin tekur mið af útflutningslandi og komudegi og birtir tímasetta áætlun um bólusetningar, sýnatökur og önnur heilbrigðisskilyrði. Jafnframt hafa leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar verið uppfærðar og sett í…Lesa meira