Netspjall um innflutning gæludýra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda dýraeigendum undirbúning innflutnings hunda og katta. Á netspjallinu er spurningum um inn- og útflutning hunda og katta svarað. Reiknivélin tekur mið af útflutningslandi og komudegi og birtir tímasetta áætlun um bólusetningar, sýnatökur og önnur heilbrigðisskilyrði. Jafnframt hafa leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar verið uppfærðar og sett í þrep til að leiða innflytjendur í gegnum ferlið skref fyrir skref. Netspjallið er eingöngu sýnilegt á opnunartíma stofnunarinnar virka daga kl. 9-12 og 13-15.",
  "innerBlocks": []
}
Netspjall um innflutning gæludýra - Skessuhorn