Fréttir

true

Knattspyrnusamband Íslands ítrekar afsökunarbeiðni sína

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. Nefndinni er ætlað að fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og stjórnar KSÍ og bregðast…Lesa meira

true

Mikið fjör á Fosshóteli Stykkishólmi á föstudaginn

Á föstudaginn í síðustu viku var mikið fjör á Fosshóteli Stykkishólmi þegar haldin var formleg opnunarhátíð á nýendurbættum 300 manna ráðstefnu- og veislusal, nýjum bar, veitingastað, nýjum herbergjum og glæsilegri aðstöðu. Að sögn markaðsstjóra Íslandshótela er aðstaðan í Stykkishólmi tilvalin fyrir árshátíðir, tónleika, ættarmót eða aðra viðburði og býður upp á ýmsa möguleika. Ekki skemmir…Lesa meira

true

Ljúka þróun rafrænna sjúkraflutningaskýrslna

Þróun rafrænna sjúkraflutningaskýrslna er að ljúka, prófunarferli að hefjast og stefnt að því að innleiðing þeirra hefjist í byrjun næsta árs. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að þessi tækni marki tímamót; auki öryggi sjúklinga með skjótu aðgengi sjúkraflutningafólks að upplýsingum um skjólstæðinga sem gagnast við ákvarðanatöku á vettvangi og skráning nýrra upplýsinga verður samstundis aðgengileg…Lesa meira

true

Sextíu kindur fóru í sjóinn og tuttugu drukknuðu

Bátur sökk með sextíu kindum um 50 metrum frá Stykkishólmi á sunnudaginn. Í frétt á vef RÚV segir að allar kindurnar hafi farið í sjóinn auk tveggja manna sem voru í bátnum, en þá sakaði ekki. Tuttugu kindur drukknuðu en aðrar komust á þurrt, sumum var bjargað en aðrar syntu sjálfar í land. Verið var…Lesa meira

true

ÍA Íslandsmeistari í 2. flokki karla

B-lið 2. flokks ÍA tók við Íslandsmeistaratitlinum á mánudagskvöldið eftir sigur gegn KA/ Dalvík/ Reynir/ Magni í Akraneshöllinni. Liðið sem spilar undir merkjum ÍA/ Kári/ Skallagrímur í sumar lék 18 leiki í deildinni, vann 16, gerði tvö jafntefli og tapaði engum leik. Liðið endaði með 50 stig og markatöluna 84-18 en í öðru sæti var…Lesa meira

true

Smit í Brekkubæjarskóla

Upp hefur komið smit í hópi nemenda í einum árgangi í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru allir nemendur og starfsmannateymið sem honum tengist komnir í sóttkví. Einnig er einn starfsmaður veikur og árgangur sem hann kom að er kominn í sóttkví ásamt hluta starfsfólks þess árgangateymis. Að auki er hluti af nemendum annars árgangs kominn…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun við Faxaflóa

Gula viðvörunin sem átti að taka gildi um land allt í morgun vegna hvassviðris og úrkomu er víða orðin appelsínugul, m.a. hér við Faxaflóa. Viðvörunin er gul frá kl. 10-13:30 með suðaustan og austan 15-20 m/s og talsverðri rigningu en norðaustan 20-25 m/s á Snæfellsnesi. Frá klukkan 13:30 til 17:00 tekur við appelsínugul viðvörun með…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit semur við Þrótt um gatnagerð

Hvalfjarðarsveit hefur gengið til samninga við Þrótt ehf. um jarðvinnu, lagnir og yfirborðsfrágang við nýja götu í Melahverfi og verður verkið unnið í samvinnu við Veitur, Mílu og Rarik. Í tilkynningu frá Hvalfjarðarsveit segir að nýja gatan heiti Lyngmelur og er sunnan megin í hverfinu. Þá segir að framkvæmdir eigi að hefjast í lok október…Lesa meira

true

Leiktæki sem slá í gegn

Ný leiktæki voru sett upp fyrir yngsta fólkið á Hellissandi í síðustu viku. Um er að ræða tvö tæki sem sett voru upp við ærslabelginn og slógu þau rækilega í gegn samkvæmt því sem segir á Facebook síðu Snæfellsbæjar.Lesa meira

true

Gul viðvörun á morgun

Gul viðvörun er fyrir allt landið á morgun, þriðjudag, vegna hvassviðris og úrkomu. Við Faxaflóa og Breiðafjörð tekur viðvörunin gildi kl. 10:00. Við Faxaflóa gildir viðvörunin til kl. 17:00 og er spáð suðaustan og austan 15-20 m/s og talsverðri rigningu, en norðaustan 20-25 m/s á Snæfellsnesi. Eftir hádegi snýst í norðvestan 15-23 m/s og búast…Lesa meira