Fréttir

true

Ríkisstjórnin leggur línurnar vegna fjölgunar kóvidsmita

Herða aðgerðir á landamærum, styrkja innviði heilbrigðiskerfis og hefja örvunarbólusetningar Á fundi sínum síðastliðinn föstudag ræddi ríkisstjórnin áhersluatriði er lúta að aðgerðum vegna nýjustu bylgju Covid-19 hér á landi. „Brýnast er að herða aðgerðir á landamærum, styrkja innviði heilbrigðiskerfisins og bæta við örvunarbólusetningum vegna Covid-19,“ segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Núverandi sóttvarnareglur gilda til föstudagsins…Lesa meira

true

Umferð um nýja hafnarkantinn í Grundarfirði

Nú eru skemmtiferðaskip sem koma til Grundarfjarðar farin að nýta sér nýja viðlegukantinn á höfninni í auknum mæli. Sunnudaginn 1. ágúst lagðist skemmtiferðaskipið Silver Shadow að bryggju og gátu farþegar gengið frá borði og upp í hópferðabíla sem biðu eftir þeim á bryggjunni. Silver Shadow er stærsta skip sem hefur lagst að bryggju í Grundarfirði…Lesa meira

true

Leiðarlok Legsteinahússins í Húsafelli

Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli í Borgarfirði hefur gefið út yfirlýsingu vegna væntanlegs niðurrifs Legsteinahússins sem byggt var í nágrenni listasafns hans fyrir nokkrum árum. Yfirlýsinguna nefnir hann „Leiðarlok“. Framkvæmdir eru þegar hafnar við niðurrif hússins og stefnt að þeim verði lokið fyrir mánaðamót. Yfirlýsing Páls er svohljóðandi í heild sinni: „Líf mitt og starf…Lesa meira

true

Fasteignamat hótels lækkað um 263 milljónir

Yfirfasteignamatsnefnd hefur úrskurðað í kæru sem fyrirtækið BS eignir ehf., eigendur hótels B-59 í Borgarnesi, lagði fram vegna fasteignamats á hótelbyggingunni og samliggjandi skrifstofurými. Töldu þeir fasteignamatið óeðlilega hátt miðað við sambærilegar eignir á svæðinu og á Suðurlandi. Þjóðskrá hafði áður hafnað beiðni um leiðréttingu fasteignamatsins og því var málinu skotið til æðra stjórnsýslustigs. Það…Lesa meira

true

Verkalýðsforingjum blöskrar ofurhagnaður bankanna

Stallbræðurnir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA hafa á síðustu dögum hvor um sig ritað harðorðar greinar um þann mikla hagnað sem viðskiptabankarnir þrír hafa skilað á liðnum árum. Á færslu á Facebook síðu sinni skrifaði Vilhjálmur 4. ágúst síðastliðinn að frá fjármálahruninu, eða frá 2009, hafi Landsbankinn skilað 334,1 milljarða…Lesa meira

true

Plan B hátíðin hafin í Borgarnesi

Samtímamyndlistarhátíðin Plan-B hófst í gær í Borgarnesi og stendur til sunnudagsins 8. ágúst. Hátíðin fer fram í Borgarnesi og er til þess fallin að miðla samtímalist á landsbyggðinni en þar koma saman reyndir listamenn og minna reyndir í fjölbreyttum sýningum og viðburðum. ,,Plan B hefur alltaf þurft að finna lausnir en í ár höfum við,…Lesa meira

true

Ekið um nýja Faxabraut með járn til útskipunar

Í dag og næstu þrjá daga verða miklir þungaflutningar um nýja Faxabraut á Akranesi. Gerð var undantekning og gatan, þrátt fyrir að framkvæmdum sé ekki lokið, opnuð fyrir flutningabíla í nokkra daga meðan þeim verður ekið með brotajárn niður á Akraneshöfn þar sem það er híft um borð í flutningaskip sem þar liggur við kaja.…Lesa meira

true

Leik ÍA og HK frestað í gærkvöldi vegna smits

Leikur ÍA og HK sem átti að fara fram í gærkvöldi á Akranesvelli í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu var frestað vegna þess að einn leikmaður HK greindist með Covid 19. Tveir leikir fóru fram í deildinni í gær; FH vann KR á útivelli 0-2 og komst þar með á toppinn og Grindavík vann sinn þriðja…Lesa meira

true

Luku púttmótaröð sumarsins

Síðdegis á miðvikudaginn lauk þriggja móta púttkeppni FEBAN og FEBBN. Sem fyrr var mótið haldið á þremur stöðum; í Borgarnesi, Nesi í Reykholtsdal og endað á Garðavelli á Akranesi. Fyrirkomulag mótsins er þannig að árangur sjö bestu kylfinga hvors félags gildir til úrslita. Það voru Borgfirðingar í FEBBN sem báru sigur út býtum á mótinu,…Lesa meira

true

Framkvæmdir við hluta Faxabrautar

Hafin er vinna við hluta Faxabrautar á Akranesi, milli Faxatorgs og Jaðarsbrautar. Borgarverk, sem er verktaki við framkvæmdirnar, áætlar að loka götupartinum næstu daga. Við þetta lokast Sandabraut við Faxabraut sem og aðgengi að húsum sem hafa aðkomu frá Faxabraut. Sandabraut verður því botnlangagata eftir lokun. Gatan verður ekki einstefnugata á meðan, ekið verður í…Lesa meira