Fréttir

true

Stefán Gísli Íslandsmeistari í leirdúfuskotfimi

Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet, eða leirdúfuskotfimi á vegum Skotíþróttasambands Íslands, fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn um helgina. Í karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Íslandsmeistari, í kvennaflokki Helga M. Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, í unglingaflokki Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar og í liðakeppninni sveit Skotfélags Reykjavíkur. Stefán Gísli keppir…Lesa meira

true

Umhverfisganga í Stykkishólmi hefst í dag

Umhverfisganga verður í Stykkishólmi dagana 9. til 12. ágúst. Frá þessu segir á vefsíðu Stykkishólmsbæjar en í þessum göngum mun Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri, ásamt öðrum fulltrúum bæjarins, ganga með íbúum um hverfi Stykkishólmsbæjar og huga að nánasta umhverfi. Tilgangur umhverfisgöngu er að efna til samtals um nánasta umhverfi, hvað megi fara betur í frágangi…Lesa meira

true

Samþykkt að hefja sameiningarviðræður tveggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi

Á fundi í hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps síðastliðinn miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Snæfellsbæ dagsett 20. júlí síðastliðinn þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarstjórnar til þess að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður milli sveitarfélaganna. Hreppsnefnd samþykkti með fjórum atkvæðum að hefja formlegar viðræður við Snæfellsbæ um sameiningu sveitarfélaganna. Gísli Guðmundsson greiddi atkvæði á móti…Lesa meira

true

Jaðarsbakkalaug lokuð út vikuna

Vegna árlegs viðhalds er Jaðarsbakkalaug á Akranesi lokuð frá og með deginum í dag, mánudag, og til föstudagsins 13. ágúst. Þreksalurinn verður opinn frá kl. 06.00 – 19.00 mánudag til fimmtudags en lokað verður á föstudag. Þá var Guðlaugin lokuð í gær og í dag vegna viðhalds og lagfæringa. Nánari upplýsingar um opnun Guðlaugar verða…Lesa meira

true

Örvunarskammtar gefnir á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 11. ágúst verða gefnir örvunarskammtar af Pfizer bóluefninu á Akranesi fyrir þá sem bólusettir voru með bóluefni Janssen. Bólusett verður í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á Akranesi frá klukkan 10-12 og klukkan 13-14. „Þeir sem eru búsettir á Akranesi og Borgarnesi fá boð með strikamerki og tímasetningu. Aðrir sem tilheyra heilbrigðisumdæmi HVE eru einnig velkomnir…Lesa meira

true

Ólsarar töpuðu gegn Eyjamönnum

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði ÍBV í Lengjudeild karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli á laugardaginn. Eyjamenn komust yfir eftir hálftíma leik með marki frá Ísak Andra Sigurgeirssyni sem lék óáreittur með boltann inn í teig Ólsara og sneiddi boltann snyrtilega í nærhornið. Eyjamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og þeir bættu við öðru…Lesa meira

true

Skagamenn eygja von eftir sigur á HK

Skagamenn tóku á móti HK í miklum fallbaráttuslag í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Skagamenn byrjuðu af miklum krafi og komust yfir strax á annarri mínútu. Viktor Jónsson lagði þá boltann út á Alexander Davey sem skaut á markið og fór boltinn af varnarmanni HK og í netið. Um miðbik fyrri hálfleiks…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir báðir úr GKG

Íslandsmótið í golfi fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri um liðna helgi. Keppt var um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki í 80. skipti og í 55. skipti í kvennaflokki. Einnig var keppt um Björgvinsskálina í fyrsta sinn en um er að ræða gamlan verðlaunagrip sem veittur verður þeim áhugamanni sem leikur á lægsta skori í kvenna- eða…Lesa meira

true

Kári náði jafntefli gegn Njarðvík

Kári lék gegn liði Njarðvíkur á Rafholtsvellinum suður með sjó á föstudaginn í 2. deild karla í knattspyrnu. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en Njarðvík komst yfir á 50. mínútu þegar Kenneth Hogg skallaði boltann í mark Kára en Ísak Örn Elvarsson jafnaði metin skömmu síðar með skalla eftir hornspyrnu. Njarðvík komst síðan aftur…Lesa meira

true

Sóttu slasaða konu að Rauðfeldargjá

Björgunarsveitir víða af landinu voru kallaðar út á sama hálftímanum síðdegis í gær til að sinna fjórum ólíkum útköllum. Björgunarsveitir á Suður,- Vestur- og Austurlandi voru kallaðar út til að sinna slysum á fólki. Meðal annars var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út til að sækja slasaða konu við Rauðfeldargjá og koma henni í sjúkrabíl.…Lesa meira