Fréttir

true

Ekki hægt að skylda bændur til að reka fé á afrétt

Byggðarráð Borgarbyggðar telur óframkvæmanlegt að skylda sauðfjáreigendur til að reka fé sitt á afrétt. Á fundi sínum 24. júní síðastliðinn vísaði byggðarráð til 6. greinar fjallskilasamþykktar nr. 683/2015 og þess að afréttir eru ekki að fullu afgirtir. Byggðarráð hafnar því að verða við tveimur erindum nokkurra landeigenda sem óskað hafa eftir aðkomu sveitarstjórnar að smölun…Lesa meira

true

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stækkaður á afmælisári

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 28. júní árið 2001 og átti því 20 ára afmæli á mánudaginn. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í gangi undanfarna daga í þjóðgarðinum sem náði hámarki á sunnudaginn þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins við athöfn sem fram fór á Malarrifi. Stækkar garðurinn nú um 9%…Lesa meira

true

Undirbúningur í gangi fyrir Landsmót 50+ í Borgarnesi:

Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri fer fram í Borgarnesi helgina 27.-29. ágúst í sumar. Þetta verður í tíunda skipti sem mótið er haldið. Flemming Jessen er formaður framkvæmdarnefndar Landsmótsins. Hann segir að fyrsta Landsmótið hafi verið haldið á Hvammstanga árið 2011 með um 200 keppendum en þátttaka hafi aukist jafnt og þétt…Lesa meira

true

List í Alviðru

Í Alviðru í Dýrafirði dveljast nú tólf listamenn sem eru að vinna að umhverfislist í landi Alviðru. Þema verkefnisins er Milli fjalls og fjöru. Á laugardaginn kemur 3. júlí kl. 14 verður opnun umhverfislistaverkunum í Alviðru. Listamennirnir sem starfa í verkefninu eru: Thora Karlsdóttir, Steinunn Matthíasdóttir, Aðalsteinn Þórsson, Arna Guðný Valsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Guðrún Hadda…Lesa meira

true

Fjölmenni á Akratorgi við setningu Írskra daga

Það kom í hlut leikskólabarna á Akranesi að vera viðstödd setningu Írskra daga klukkan 14 í dag á Akratorgi. Kynnir var Fríða Kristín Magnúsdóttir verkefnisstjóri hjá Akraneskaupstað en Elsa Lára Arnardóttir formaður bæjarráðs setti hátíðina. Halla hrekkjusvín, Solla stirða og Íþróttaálfurinn skemmtu og stýrðu léttum íþróttaæfingum. Hátíðin er þar með formlega hafin og við tekur…Lesa meira

true

Tríó Amasia á sumartónleikum í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 4. júlí kl. 16 mun Tríó Amasía flytja tónlist millistríðsáranna á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Nýstofnað kammertríó að nafni Tríó Amasia hefur m.a komið fram á tónleikum sem haldnir voru undir merkjum Lista- og menningarhátíðar Hafnarfjarðar, Björtum dögum og í Sumartónleikaröð Hólakirkju en þessi skemmtilega hljóðfærsamsetning gefur tilefni til einstaks samhljóms. Tríóið flytur…Lesa meira

true

Samningur um smíði þriggja nýrra björgunarskipa

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023. Smíði á fyrsta skipinu hefst í lok október á þessu ári, en það leysir af hólmi 28 ára gamalt skip sem keypt var nýtt til Vestmannaeyja árið…Lesa meira

true

Breytingar gerðar á aðalnámsskrá leikskóla

Breytingar sem miða að því að mæta betur þörfum barna með annað móðurmál en íslensku og öðrum fjöltyngdum börnum í leikskólum hafa nú verið kynntar helstu hagsmunaaðilum.  Um er að ræða breytingar þar sem aukin áhersla er lögð á mikilvægi þess að mæta beri hverju og einu barni út frá menningarbakgrunni þess og að námsumhverfi…Lesa meira

true

Káramenn enn í basli

Kári mætti liði Þróttar í Vogum á Vogaídýfuvellinum í gærkvöldi í níundu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Heimamenn komust yfir á 13. mínútu með marki frá Bjarka Birni Gunnarssyni en Martin Montipo var fljótur til að svara fyrir Kára með marki á 17. mínútu.  Alexander Helgason átti þó síðasta orðið fyrir Þrótt með marki…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskipið væntanlegt á Akranes á sunnudaginn

Á vef Faxaflóahafna má finna yfirlit yfir komur skemmtiferðaskipa í sumar. Þar má sjá að heimsóknir slíkra skipa til Akraness verða alls sjö talsins í sumar, fram til 30. september. Það skip sem oftast mun hafa viðkomu er National Geographic Explorer en það kemur alls fimm sinnum nú í júlí en fyrsta viðkoma þess er…Lesa meira