Fréttir

true

Grjótið er nýr veitingastaður á Akranesi

Veitinga-, skemmti- og afþreyingarstaðurinn Grjótið-Bistro-Bar-Cafe við Kirkjubraut á Akranesi var opnaður í vikunni með pompi og pragt. Veitingastaðurinn býður meðal annars upp á mexíkanska matargerð og hefur fengið til liðs við sig erlenda sérhæfða matreiðslumenn.  Grjótið verður opið alla helgina yfir Írska daga frá kl. 11 að morgni til 3 um nóttina alla dagana. Lesa meira

true

Hörkukeppni í Álmanninum 2021

Þríþrautarkeppnin Álmaðurinn fór fram á miðvikudaginn á Akranesi. Í henni er hjólað frá Akraneshöllinni upp að Akrafjalli, þaðan er hlaupið upp á topp á Háahnúki og niður aftur, síðan er hjólað á ný að Langasandi þar sem lokahluti keppninnar fer fram með sjósundsspretti sem er 400 metrar. Veður var sæmilegt, logn en mikil þoka í…Lesa meira

true

Töfrar Vesturlands er heiti ljósmyndasýningar á Stálpastöðum

Ljósmyndasýningin Töfrar Vesturlands hefur verið opnuð á Stálpastöðum í Skorradal. Að þessu sinni er það Emil Þór Sigurðsson ljósmyndari sem sýnir. Emil er fæddur í Reykjavík 1953 og hefur verið virkur ljósmyndari í rúm 40 ár við að mynda Ísland. Fjórar ljósmyndabækur hafa verið gefnar út eftir hann. Emil hefur haldið sýningar hér á landi…Lesa meira

true

Marrið í stiganum hlýtur virt verðlaun

Í gær var tilkynnt að Eva Björg Ægisdóttir rithöfundur frá Akranesi hlyti „Rýtinginn,“ verðlaun Samtaka breskra glæpasagnahöfunda árið 2021 í flokkinum frumraun ársins („New Blood“). Verðlaunin hlýtur hún fyrir bókina Marrið í stiganum. Þetta er í fyrsta skipti sem þýdd bók fær þessi verðlaun. Í apríl síðastliðnum var birtur svokallaður langur listi yfir þrettán tilnefndar…Lesa meira

true

Bluegrass í Landnámssetri og Frystiklefanum

Ensk-íslenska bluegrass sveitin Jæja mun á leið sinni á Þjóðlagahátíð á Siglufirði halda tvenna tónleika á Vesturlandi á næstu dögum. Þá fyrri í Landnámssetrinu í Borgarnesi sunnudaginn 4. júlí kl. 16 og hina síðari í Frystiklefanum í Rifi mánudaginn 5. júlí kl 20:30. Jæja samanstendur af fjórum ungum mönnum úr ensku bluegrass-senunni. Þeir eru Bragi…Lesa meira

true

Máluðu írsku fánalitina á götuna

Fyrr í dag tóku forsvarmenn Akraneskaupstaðar og Írskra daga sig til og máluðu götustubbinn milli Kirkjubrautar og Suðurgötu á Akranesi í írsku fánalitunum. Til stóð að mála í gær við setningu bæjarhátíðarinnar, en var frestað vegna úrkomu. Þau Fríða Kristín Magnúsdóttir verkefnastjóri, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Sædís Alexía Sigurmundsdóttir skrifstofustjóri skiptu litum á milli…Lesa meira

true

Spá tveimur milljónum ferðamanna á næsta ári

Ferðamálastofa spáir því að um 890 þúsund erlendir ferðamenn muni sækja landið heim í ár. Á næsta ári er því hins vegar spáð að gestafjöldinn verði svipaður og hann var árið 2019, eða rétt tæplega tvær milljónir erlendra ferðamanna.Lesa meira

true

Ekið um nýjan vegarkafla á Heiðarsporði

Búið er að leggja klæðningu á nýjan vegarkafla á Heiðarsporði á Holtavörðuheiði og hefur umferð verið hleypt á nýja veginn. Þar hefur umferðarhraði nú verið lækkaður niður í 50 km/klst. Vegfarendur eru beðnir að virða hraðatakmörkun og sýna tillitssemi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Upprisa er nýr styrktaraðili Kára

Knattspyrnufélagið Kári og Byggingafélagið Upprisa undirrituðu nú á dögunum þriggja ára samstarfssamning. Með samningnum verður Byggingafélagið Upprisa aðalstyrktaraðili Kára og mun nafn þess prýða nýja og glæsilega búninga félagsins. „Upprisa vill með þessu styðja það góða og uppbyggilega starf sem Kári hefur unnið síðustu tíu ár og styrkja það næstu árin,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Öllum starfsmönnum Agustson í Stykkishólmi sagt upp

Öllum 32 starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. Í Stykkishólmi var sagt upp störfum nú um mánaðamótin. Starfsmönnum voru tilkynnt þessi tíðindi á starfsmannafundi á mánudag, segir Sigurður Ágústsson einn eiganda fyrirtækisins, í frétt á mbl.is. Uppsagnirnar koma til vegna viðvarandi rekstrarerfiðleika og tapreksturs. Þá segir í tilkynningu vegna málsins að við taki krefjandi endurskipulagningarferli með það…Lesa meira