Fréttir

true

Ræktunarstöðin Miðvogi er nú opin

Ræktunarstöðin Miðvogi er staðsett við gamla þjóðveginn rétt fyrir ofan útivistarsvæði hunda á Akranesi. Stöðin var opnuð formlega fyrr í þessum mánuði. Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur er eigandi stöðvarinnar. Blaðamaður kíkti í heimsókn til hans í blíðskaparviðri í síðustu viku. Það kennir ýmissa grasa.  Hann er með til sölu mikið af ávaxtatrjám, eins og til…Lesa meira

true

Hraðhleðslustöð væntanleg við Nettó

Samkaup hefur gert samning við Ísorku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir félagsins um allt land. Áætlað er að fyrsta rafhleðslustöðin verði opnuð við verslun Nettó í Borgarnesi í sumar og í kjölfarið munu aðrar verslanir bjóða upp á hleðslustöðvar.Lesa meira

true

Skorið í tunnur við höfnina

Grásleppuveiðar máttu hefjast við innanverðan Breiðafjörð síðastliðinn fimmtudag. Héldu tólf bátar strax til veiða frá Stykkishólmi. Þeir Páll Aðalsteinsson og Álfgeir Marinósson lönduðu á mánudaginn grásleppu úr Önnu Karínu SH eftir þrjár nætur. Þeir höfðu alls ellefu tunnur með sér út en þær dugðu ekki til. Þeir komu því að landi með talsvert af óskorinni…Lesa meira

true

Ellefu sækja um prestsstarf

Fyrr í vor auglýsti Biskupsstofa eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestkalli á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Umsóknarfrestur er nú liðinn og sótt ellefu um starfið en tveir þeirra óskuðu nafnleyndar. Hinir níu eru: Árni Þór Þórsson guðfræðingur, Edda Hlíf Hlífarsdóttir guðfræðingur, Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur, Helga Bragadóttir guðfræðingur, Hilmir Kolbeins guðfræðingur, Hjördís Perla…Lesa meira

true

Ráðherra friðlýsti votlendissvæði Fitjaár

Síðdegis í gær mætti Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra í Skorradalinn. Erindið var að skrifa undir friðlýsingu votlendissvæðis Fitjaár. Nú er það því orðið að friðlandi í skilgreiningu laga um náttúruvernd. Friðlýsingin miðar að því að vernda víðlent, samfellt og lítið raskað votlendissvæði við Fitjaá þar sem skiptast á mýrar og flóar. Svæðið gegnir…Lesa meira

true

Hjörtur sló markametið

Skagamaðurinn Hjörtur Hjartarson skoraði í gær fimm mörk fyrir SR á móti liði Gullfálkans í 4. deildinni í knattspyrnu. Þar með sló hann markamet Vilbergs Marinós Jónassonar sem hann jafnaði í síðustu viku í leik gegn Skallagrími og er nú kominn með alls 222 mörk í 399 leikjum á Íslandsmótinu. Hjörtur splæsti í stöðufærslu og…Lesa meira

true

Kynna deiliskipulagslýsingu tveggja áfanga í Skógahverfi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýlega lýsingu fyrir gerð deiliskipulags Skógahverfis sem nefndir eru áfangar 3C og 5. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum 17. maí að skipulagsgögnin vegna þessara nýju áfanga í Skógahverfi verðir kynnt á almennum kynningarfundi. Undanfarin ár hefur meginuppbyggingarsvæði íbúðabyggðar á Akranesi verið í Skógahverfi. Rrammaskipulag hverfisins var unnið árið 2005 og…Lesa meira

true

Húsið á Háreksstöðum gert að veiðihúsi

Nokkuð er um að veiðifélög séu að breyta, færa eða byggja ný veiðihús við laxveiðiárnar. Nefna má að nýtt hús er nú risið við Hörðudalsá í Dölum, bygging nýs veiðihúss við Reykjadalsá í Borgarfirði er í útboði og þá er verið að lagfæra húsið við Haukadalsá í Dölum. Veiðihúsið sem hefur staðið í Hvammslandi í…Lesa meira

true

Rúmensk listakona heldur sýningu í tvo daga í vikulokin

Rúmenska listakonan Adelina Ivan er stödd í Grundarfirði þessa dagana þar sem hún vinnur að list sinni fyrir sýningu sem verður um næstu helgi. Adelina kom til landsins 13. maí síðastliðinn og kom til Grundarfjarðar þremur dögum síðar. Hún er stödd hér á landi í samstarfi við ArtAk350 sem rekur listavinnustofu í Grundarfirði. Adelina mun…Lesa meira

true

Grillað í trássi við tilmæli

Þrátt fyrir tilmæli almannavarna til fólks um að grilla ekki barst Neyðarlínu síðdegis á föstudag í síðustu viku tilkynning um að verið væri að grilla á kolagrilli í Húsafelli og að eldtungurnar stæðu langt upp í loft. Lögreglu hafði samband við slökkvilið og staðarhaldara í Húsafelli. Staðarhaldari ræddi við grillarana enda augljóst að athæfið getur…Lesa meira