
Síðdegis í gær mætti Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra í Skorradalinn. Erindið var að skrifa undir friðlýsingu votlendissvæðis Fitjaár. Nú er það því orðið að friðlandi í skilgreiningu laga um náttúruvernd. Friðlýsingin miðar að því að vernda víðlent, samfellt og lítið raskað votlendissvæði við Fitjaá þar sem skiptast á mýrar og flóar. Svæðið gegnir…Lesa meira








