Fréttir

true

Ferðamönnum fjölgar ört frá Bretlandi og Bandaríkjunum

Flugferðum til og frá landinu og ferðamönnum sem hingað koma fjölgaði hratt í maímánuði. Líkur eru á að fjölgunin verði áfram mikil á næstu vikum ef tekið er mið af flugframboði og áætlunum um nýtingu hótela. Vísbendingar eru um að erlendir ferðamenn á Íslandi verji nú talsvert meira fé en var fyrir heimsfaraldur kórónuveiru en…Lesa meira

true

Skallagrímur og Reynir H með góða sigra

Skallagrímur og Reynir Hellissandi spiluðu í gærkveldi sína fyrstu heimaleiki í 4. deildinni í fótbolta og unnu bæði liðin örugga sigra. Skallagrímsmenn léku gegn Álftnesingunum í KFB og unnu stórsigur 7-1. Skallagrímsmenn komust í 5-0 eftir klukkutíma leik með tveimur mörkum Sigurjóns Ara Guðmundssonar og þeir Mario Pascual, Viktor Már Jónasson og Declan Redmond voru…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti í apríl

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í apríl síðastliðnum samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.309 og var upphæð viðskiptanna um 66 milljarðar króna. Þegar apríl 2021 er borinn saman við mars 2021 fækkar kaupsamningum um 29,5% og velta lækkar um 30,3%.…Lesa meira

true

Friðlýsa Fitjaland

Í dag, miðvikudaginn 26. maí, mun umhverfis- og auðlindaráðherra undirrita friðlýsingarskilmála fyrir friðlandið við Fitjaá í innanverðum Skorradal. Eins og lög gera ráð fyrir vísaði Umhverfisstofnun tillögu þessa efnis til ráðherra í september síðastliðnum en heimsfaraldur kórónuveirunnar kom í veg fyrir að hægt væri að undirrita skilmálana fyrr en nú.Lesa meira

true

Tónar og ljóð Valgerðar í Reykholtskirkju

Föstudaginn 28. maí verða tónleikar í Reykholtskirkju í Borgarfirði þar sem Valgerður Jónsdóttir, kemur fram ásamt hljómsveit. Valgerður er tónlistarkona frá Akranesi, á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni og á orðið mikið safn laga og texta sem hún hefur samið gegnum tíðina. Á dagskrá tónleikanna verður fjölbreytt blanda af tón- og textasmíðum…Lesa meira

true

Landgræðsluverðlaunin afhent

Árni Bragason landgræðslustjóri afhenti nýlega Landgræðsluverðlaunin 2021. Þau eru afhent einstaklingum, félagasamtökum og sveitarfélögum sem hafa þótt sýna góðan árangur við landgræðslu og landbætur og voru fyrst afhent 1990. Verðlaunahafar þetta árið eru: Skútustaðahrepppur, Bláskógaskóli og Menntaskólinn á Laugarvatni og bændur á Stóru-Mörk III undir Vestur-Eyjafjöllum.Lesa meira

true

Borgarverk fékk afhentan nýjan Komatsu veghefil

Kraftvélar afhentu á dögunum Borgarverki nýjan Komatsu GD675-7 veghefil. Hefillinn vigtar um 19 tonn og er vel útbúinn á allan hátt. Hann afhendist m.a. með nýjum fingurstýrðum stjórntækjum, einstaklega mjúkri gírskiptingu, 14 feta blaði, Multi shank ripper, framtönn, sjálfvirku smurkerfi, Komtrax 3G kerfi, Komatsucare viðhalds- og þjónustupakka og svo mætti áfram telja.Lesa meira

true

Ævintýraleiðsögunám án staðsetningar

Keilir á Reykjanesi hefur ákveðið að auka sveigjanleika leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku með bóklegu fjarnámi í því skyni að koma betur til móts við nemendur á landsbyggðinni. Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku er átta mánaða nám á háskólastigi. Námið hefur verið kennt við Keili frá árinu 2013 í samstarfi við Thompson Rivers University í Kanada, einn virtasta skóla…Lesa meira

true

Komu össu til bjargar

Þeir Kristján Lár Gunnarsson og Björn Ásgeir Sumarliðason í Stykkishólmi komu löskuðum erni til bjargar í gærkvöldi og færðu hann í hendur sérfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Við vorum aðeins að fylgjast með erninum og okkur þótti eitthvað óeðlilegt við fuglinn. Svo sáum við hann enda í sjónum og vissum að eitthvað væri að svo við…Lesa meira

true

Algengt leiguverð er um tvö þúsund krónur á fermetra

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl á þessu ári. Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 694 samningar, sem þinglýst var í apríl 2021 og byggja meðfylgjandi tölur á þeim. Leiguverð er mismunandi eftir landshlutum, hæst á höfuðborgarsvæðinu og lækkar svo eftir því sem fjær dregur. Á…Lesa meira