Fréttir

true

Jólaútvarp GSB fer í loftið í næstu viku

Jólaútvarp Grunnskóla Snæfellsbæjar verður sent út í næstu viku. Um er að ræða árvissan viðburð, þar sem nemendur skólans eiga veg og vanda að dagskrárgerð og útsendingum. Sent verður út á tíðninni FM 103,5 og vert að geta þess að útvarpssendi hefur verið bætt við utan Ennis, til að bæta útsendinguna í Rifi og á…Lesa meira

true

ÍA semur við fjóra unga leikmenn

Nýverið skrifuðu fjórir ungir knattspyrnumenn undir samning við ÍA. Þetta eru þeir Brynjar Snær Pálsson, Gísli Laxdal Unnarsson, Marteinn Theodórsson og Sigurður Hrannar Þorsteinsson. Sömdu þeir allir við ÍA til ársins 2021. Hafa þeir allir verið lykilmenn í 2. flokks liði ÍA/Kára/Skallagríms, sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum undanfarin tvö keppnistímabil. Brynjar Snær hefur leikið 27 leiki með…Lesa meira

true

Sólstafir eru ástarsaga fyrir börn byggð á norrænni goðafræði

Bókaútgáfan Draumsýn hefur gefið út barnabókina Sólstafi eftir Jóhönnu Harðardóttur blaðamann í Hlésey. Bókin er ríkulega myndskreytt af Almari Steini Atlasyni, ungum hæfileikamanni sem gjarnan er kenndur við Kassann, þar sem hann dvaldi eitt sinn um vikutíma. Sólstafir byggja á fornri sögu úr Snorra-Eddu sem fjallar eins og kunnugt er um norræna goðafræði. „Mitt markmið…Lesa meira

true

Margrét Helga er íþróttamaður Grundarfjarðar

Kvenfélagið Gleym mér ei  í Grundarfirði hélt sinn árlega aðventudag fyrsta sunnudag í aðventu eins og undanfarin ár. Dagskráin fór fram í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og var hægt að kaupa handverk og kræsingar ásamt gómsætum vöfflum. Þá voru úrslit íþróttamanns Grundarfjarðar gerð kunnug en Margrét Helga Guðmundsdóttir frjálsíþrótta- og blakkona varð hlutskörpust. Einnig voru sigurvegarar í…Lesa meira

true

Veitur héldu íbúafund í Borgarnesi

Veitur boðuðu til íbúafundar á Hótel B59 í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem umræðuefnið var vatns-, hita- og fráveitumál í Borgarbyggð. Margir mættu á fundinn og mynduðust líflegar umræður. Tilefni fundarins var óánægja íbúa í sveitarfélaginu varðandi gjaldskrá Veitna. Við upphaf fundarins fór Gestur Pétusson, framkvæmdarstjóri Veitna, yfir ástæðu þess að fundurinn var boðaður og…Lesa meira

true

Skallagrímskonur fundu ekki taktinn

Skallagrímskonur fundu sig ekki gegn KR á útivelli, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Að lokum fór svo að Reykvíkingar sigruðu með 83 stigum gegn 60 stigum Borgnesinga. KR-ingar byrjuðu leikinn ágætlega á meðan Skallagrímskonur áttu erfitt með að finna taktinn. hægt en örugglega náði heimaliðið þannig tólf stiga forskoti…Lesa meira

true

Góður sigur Snæfells

Snæfell vann góðan sigur á Grindavík, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi framan af. Snæfellskonur leiddu með þremur stigum eftir upphafsfjórðunginn, 23-20. En gestirnir voru ekki langt undan og snemma í öðrum leikhluta náðu þeir forystunni. Eftir að liðin hentu…Lesa meira

true

Nýjar bækur kynntar og Aðventa lesin af sjálfboðaliðum

Í dag, fimmtudaginn 5. desember, verður opin aðventudagskrá í Safnahúsinu í Borgarnesi, þar sem fólki er boðið að koma við og hlýða á bóklestur. Dagskráin hefst kl. 17.00 með því að tveir höfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum. Það eru þau Una Margrét Jónsdóttir sem les úr bók sinni Gullöld revíunnar og Þorbergur Þórsson…Lesa meira

true

Jólatónleikar Hljómlistarfélag Borgarfjarðar

Tvennir Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 12. desember nk. Hefjast þeir kl. 17:00 og 20:30. Þar koma fram meðlimir hljómlistarfélagsins, ungir og upprennandi tónlistarmenn í Borgarfirði, og hinn geðþekki Jógvan Hansen. „Tónleikarnir eru ekki reknir í hagnaðarskyni og allur rekstrarafgangur fer í sjóð sem verður notaður til þess að styðja…Lesa meira

true

Úrval eins verðmætasta safns íslenskra hestaljósmynda í nýrri bók

Út er komin bókin Fákar og fólk – svipmyndir úr hestamennsku í 30 ár, eftir Eirík Jónsson ljósmyndara. Eiríkur hóf að mynda hesta fyrir alvöru sumarið 1979 og varð fljótt iðinn við myndatökur á hestamótum. Tók hann þá einkum ljósmyndir fyrir greinar sem hann skrifaði fyrir Vísi og síðar DV, en að auki ritaði hann…Lesa meira