Fréttir

true

Rólegt hjá lögreglunni undanfarna viku

Verkefni Lögreglunnar á Vesturlandsi síðustu viku tengdust að mestu umferð. Eitthvað var um hraðakstursbrot og tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur og einn undir áhrifum fíkniefna og með lítið magn af fíkniefnum í fórum sínum. Að sögn lögreglunnar fóru bæjarhátíðir í umdæminu um síðustu helgi vel fram en bæði voru Reykhóladagar og Á góðri…Lesa meira

true

Gerir athugasemdir við vinnubrögð meirihluta

Erindi Brekkubæjarskóla á Akranesi um aukna þjónustuþörf var tekið fyrir öðru sinni á fundi bæjarráðs síðasta fimmtudag. Bæjarráð hafði áður afgreitt erindið með ófullnægjandi hætti og var það því lagt fyrir að nýju, að því er fram kemur í fundargerð. Niðurstaðan var sú að bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti viðauka við fjárhagsáætlun upp á 4,2…Lesa meira

true

Á góðri stund í Grundarfirði

Bæjarhátíðin Á góðri stund fór fram um liðna helgi og ekki var annað að sjá en að gestir hátíðarinnar hafi skemmt sér vel. Hátiðin fór vel fram og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi af glæsilegri dagskrá hátíðarinnar. Glæsilega myndasyrpu Tómasar Freys Kristjánssonar frá hátíðinni er að finna í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Skagakaffi verður opnað á morgun

Þau Katrín Guðjónsdóttir og Marius Ciprian Marinescu hafa fest kaup á Kaffihúsinu Lesbókinni á Akranesi og munu á morgun, fimmtudaginn 1. ágúst, opna þar nýtt kaffihús undir nafninu Skagakaffi. Katrín hefur lengst af unnið hjá Símanum en núna síðast vann hún á innkaupasviði hjá Landspítalanum. Marius er línukokkur og hefur unnið víða en kom til…Lesa meira

true

„Hef alltaf haft áhuga á hvernig mannslíkaminn virkar“

Borgnesingurinn Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir er nýútskrifaður stoðtækjafræðingur Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir útskrifaðist nýlega sem stoðtækjafræðingur frá háskólanum í Jönköping í Svíþjóð. Þar hefur hún skotið niður rótum og stundað nám síðastliðin þrjú ár og ver nú sumrinu á Íslandi með kærasta sínum, fjölskyldu og vinum áður en hún heldur aftur út til Svíþjóðar til að hefja…Lesa meira

true

Tryggðu sér jafntefli á elleftu stundu

Víkingur Ó. og Þór gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust í 15. umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Þórsvelli á Akureyri í gærkvöldi. Heimamenn voru heldur sterkari framan af fyrri hálfleik, án þess þó ná að ógna marki Víkings að neinu ráði. Ólafsvíkingar lágu til baka og beittu skyndisóknum en tókst ekki…Lesa meira

true

Jöfnuðu á lokamínútunum

ÍA og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust í 11. umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi Skagakonur hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu og höfðu tapað fimm deildarleikjum í röð fyrir leikinn. Gengi Fjölnis hefur verið upp og ofan á tímabilinu. Bæði lið eru í baráttunni í neðri…Lesa meira

true

Ráðuneytið styður við LÍS

Á dögunum var undirritaður samningur um stuðning mennta- og menningarmálaráðuneytisins við Landssamtök íslenskra stúdenta. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS, undirrituðu samninginn. „Með samningnum vill mennta og menningarmálaráðuneyti stuðla að öflugum samstarfsvettvangi háskólastúdenta og að LÍS sé öflugur tengiliður stjórnvalda við íslenska háskólastúdenta í umræðu um skipulag og stefnumótun…Lesa meira

true

Dalabyggð fær fjórar milljónir úr styrkvegasjóði

Byggðarráð Dalabyggðar fagnaði á síðasta fundi sínum auknu framlagi til styrkvega. Sveitarfélagið sendi umsókn í styrkvegasjóð og fékk úthlutað fjórum milljónum króna. Samþykkt var á fundinum að úthluta 200 þús. kr. í Reykjadalsveg, einni milljón í Ljárskógarfjallsveg, 400 þús. kr. í Skarðsstöðvarveg, 100 þús. kr. í Brekkudalsveg, 50 þús. kr. í Villingadalsveg, 300 þús. kr.…Lesa meira

true

Megrunarkaffi til skoðunar

Matvælastofnun hefur tekið til skoðunar megrunarkaffi sem er til sölu hér á landi eftir að ábendingar bárust um að kaffið innihéldi amfetamínskylt efni. Morgunblaðið greindi fyrst frá en þar kemur fram að í kaffinu er meðal annars efnið Phenylethylamine sem er á bannlista hjá Alþjóðalyfjaeftirlitinu WADA. Efnið er amfetamínskylt örvandi efni sem talið er hættulegt…Lesa meira