Fréttir

true

Endurmeti birgðastöðu á lambahryggjum

Landbúnaðarráðherra hefur óskað eftir því að ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara endurmeti hvort þörf sé á því að opna tollkvóta á lambahryggjum í ljósi nýrra upplýsinga sem nefndinni hafa borist frá framleiðendum. Nefndinni ber að skila niðurstöðu í vikunni. Frá því í vor hefur nefndin reglulega fengið tilkynningar um skort á lambahryggjum frá dreifingaraðilum.…Lesa meira

true

Franskt skemmtiferðaskip á Akranesi

Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal kom til hafnar á Akranesi í þriðja skiptið síðasta laugardag. Skipið kom síðast á Akranes í ágúst í fyrra. Le Boreal var smíðað árið 2010 og er tæplega 11.000 brúttótonn, 142 metrar að lengd, 18 metrar að breidd og með djúpristu upp á 4,8 metra. Le Boreal ferjar 264 farþega, auk…Lesa meira

true

Jón Sindri ráðinn aðstoðarmaður bæjarstjóra

Jón Sindri Emilsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar. Hann hefur störf mánudaginn 12. ágúst næstkomandi. Jón Sindri tekur við af Hermanni Hermannssyni sem hefur gegnt starfi ritara/aðstoðarmanns bæjarstjóra undanfarin ár. Starf aðstoðarmanns bæjarstjóra var auglýst í vor og var umsóknarfrestur til 24. apríl. Hvorki fleiri né færri en 41 sóttust eftir því að gegna…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn burstaðir

Skallagrímsmenn fengu heldur betur skell þegar þeir mættu KF í 15. umferð 3. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Ólafsfjarðarvelli og lauk leiknum með 8-1 sigri heimamanna. Andri Snær Sævarsson kom KF yfir strax á 2. mínútu leiksins. Aksentije Milisic kom KF í 2-0 á 16. mínútu og Alexander Már Þorláksson skoraði…Lesa meira

true

Baráttusigur Kára

Kári vann iðnaðarsigur á sterku liði Vestra, 1-0, þegar liðin mættust í 14. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Eina mark leiksins kom á 17. mínútu. Sverrir Már Smárason átti þá langa sendingu upp að vítateigshorninu vinstra megin. Andri Júlíusson fleytti boltanum áfram á Arnleif sem kom á ferðinni…Lesa meira

true

„Enda er góður hestur sá sem allir geta riðið“

Á Sturlureykjum í Reykholtsdal búa þau Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Jóhannes Kristleifsson og hafa rekið þar hestatengda ferðaþjónustu til margra ára. Jonni er fæddur og uppalinn á Sturlureykjum og hefur fjölskyldan hans búið þar í um eina og hálfa öld. „Þetta byrjaði þegar ég fór út til Þýskalands að vinna á haustin og þar var fólk…Lesa meira

true

Komu grútarblautum erni til bjargar

Hún tók óvænta stefnu mótorkrossferðin hjá nokkrum félögum frá Grundarfirði er þeir voru að leika sér í mótorkrossbrautinni í Kolgrafafirði. Þeir félagar komu auga á haförn sem var í vandræðum og var augljóslega grútarblautur. Þeir gerðu sér lítið fyrir og hófu björgunaraðgerðir enda allir starfandi í þeim geira, þrír sjúkraflutningamenn og einn í áhöfn þyrlu…Lesa meira

true

Keppt var í þríþraut á Snæfellsnesi

Á laugardaginn var Extreme Triathlon haldið á Snæfellsnesi. Um er að ræða þríþraut þar sem byrjað var á að synda um 3 kílómetra í Kolgrafarfirði. Því næst hjóluðu keppendur umhverfis Snæfellsnes sem er 180 kílómetra leið. Að lokum var hlaupið fram og til baka yfir Jökulhálsinn, samtals 42,2 kílómetrar. 52 keppendur hófu keppni en tveir…Lesa meira

true

Félagsmenn VLFA fá eingreiðslu

Verkalýðsfélag Akraness og Samand íslenskra sveitarfélaga hafa komist að samkomulagi um eingreiðslu til félagsmanna VLFA sem starfa hjá Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit. Einnig var samið um að 1,5% hækkun á launatöflu og mun sú viðbótar koma til viðbótar öðrum hækkunum á launatöflu. Eingreiðslan nemur 105 þúsund krónum og kemur til útborgunar 1. ágúst. Hún greiðist í…Lesa meira

true

Framkvæmdum við fyrri áfanga lýkur í ágúst

Framkvæmdir við Grunnskólann í Borgarnesi eru nú komnar langt á veg og áætlað er að afhenda fyrri hluta hluta framkvæmdanna í næsta mánuði. Fyrirtæki Eiríks J. Ingólfssonar húsasmíðameistara, EJI ehf., hefur séð um verkið síðasta árið og hefur gengið vel og allt samkvæmt áætlun að sögn Kristófers Ólafssonar, verkstjóra framkvæmdanna. „Það hefur gengið vonum framar…Lesa meira